
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Skemmtilegt sumarstarf!
Samfélagshúsið í Aflagranda 40 óskar eftir starfsmanni í sumarafleysingu sem hefur áhuga á skemmtilegu félagsstarfi.
Samfélagshúsið í Aflagranda 40 óskar eftir að ráða starfsmann í sumar við að aðstoða í félagsstarfinu og eldhúsi.
Í Aflagranda 40 fer fram fjölbreytt félagsstarf og viðburðir fyrir fólk á öllum aldri þar sem markmiðið er að efla og virkja fólk til félagslegrar þátttöku.
Vinnutími er áætlaður frá 08:00 – 16:00 alla virka daga í átta vikur á tímabilinu júní – ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð í eldhúsi við þrif og matseld, ásamt bakstri og afgreiðsla á mat og kaffi
- Starfar í teymi samfélagshússins
- Skipuleggur og heldur utan um félagsstarf og dagskrá samfélagshússins
- Skipuleggur viðburði
- Hvetur fólk til félagslegrar virkni
- Önnur verkefni sem yfirmenn kunna að fela viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Íslenskukunnátta B2 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
Auglýsing birt16. apríl 2026
Umsóknarfrestur1. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Aflagrandi 40, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)

Hey! Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi í íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Borgarnes: Sumarstarfsfólk óskast (Garbage collector/C Driver)
Íslenska gámafélagið ehf.

Óska eftir aðstoðarkonum í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin

Selfoss: Starfsfólk í sorphirðu / waste collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Starfsmaður í heimaþjónustu á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöld og helgarvaktir
NPA miðstöðin

Car cleaner / strafsmaður i bílaþrif
Vinnubílar ehf.

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í aukastarf
NPA miðstöðin

Starfsfólk í vöruhús / Warehouse Operator
Alvotech hf

Sumarstörf á velferðarsviði Akureyrarbæjar
Akureyri

Hey! Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

Viltu vinna sem aðstoðarkona fyrir ungmenni?
K8