
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Spennandi atvinnutækifæri í íbúðakjarna
Íbúðakjarninn Barðastöðum 35 leitar að jákvæðum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúum til starfa. Á Barðastöðum er þéttur, skemmtilegur, kraftmikill og samheldin starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki. Starfið er fjölbreytt þar sem leitast er við að mæta þörfum og óskum íbúa hverju sinni. Rík áhersla er á teymisvinnu til að tryggja framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúanna. Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Í boði er 80-100% starfshlutfall, með möguleika á áframhaldandi ráðningu eftir sumarið. Vegna sérstakra aðstæðna þá eru karlmenn sérstaklega hvattir til að sækja um.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
Góð íslenskukunnátta (B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Ökuréttindi B.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Styðja og aðstoða íbúa við allar athafnir daglegs lífs.
Gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og njóta menningar og félagslífs.
Aðstoða við framkvæmd einstaklingsáætlana í samráði við einstaklinga og ábyrgðaraðila.
Veita aðstoð við meðferð fjármuna í samráði við einstaklinga og stjórnendur.
Þátttaka í teymisvinnu sem tengist starfinu.
Auglýsing birt5. maí 2022
Umsóknarfrestur15. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Starfsmaður við umönnun í dagþjálfun Esjutúni
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali

Icekorea leitar að sölumanneskju / söluráðgjafa
Icekorea

Aðstoð á iðjuþjálfunardeild
Reykjalundur

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október
NPA miðstöðin

Reykjanes: Starfsmaður í sorphirðu/garbage collector
Íslenska gámafélagið ehf.

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin