Borg99
Borg99
Borg99

Sölumanneskja í 20% í veitingageiranum

Ertu drífandi, átt auðvelt með að kynnast fólki og hefur gaman af sölu? Borg99 leitar að sjálfstæðri sölumanneskju til að byggja upp og efla viðskiptasambönd við veitingastaði, bari, hótel og fyrirtæki.

Borg99 er lítil og kvik heildsala í vexti sem sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu drykkjarvöru. Við erum einkaumboðsaðili Föroya Bjór á Íslandi og flytjum meðal annars inn Bitburger, Benediktiner, Nordic Cider, vín frá Duckhorn og Glenwood, Einar’s Whisky og Clase Azul tequila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kynna vöruúrval Borg99 og afla nýrra viðskiptavina.
  • Heimsækja veitingastaði, bari, hótel og fyrirtæki og byggja upp traust viðskiptasambönd.

  • Sinna núverandi viðskiptavinum og fylgja eftir tilboðum og pöntunum.

  • Vinna með teyminu að sölumarkmiðum og kynningu árstíðabundinna vara, svo sem jóla- og páskabjórs.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að manneskju sem

  • Sýnir frumkvæði, vinnur sjálfstætt og skipuleggur tíma sinn vel.

  • Á auðvelt með samskipti og veitir góða þjónustu.

  • Hefur áhuga á bjór, víni og drykkjarmenningu.

  • Hefur gott vald á íslensku og ensku.

  • Er með bílpróf og hefur náð 20 ára aldri.

Reynsla af sölu, þjónustu eða störfum í veitinga- og hótelgeiranum er kostur.

Við bjóðum

  • 20% starf með sveigjanlegum vinnutíma sem getur hentað samhliða námi eða öðru starfi.

  • Grunnlaun auk söluþóknunar sem umbunar árangri.

  • Tækifæri til að hafa áhrif og vaxa með fyrirtækinu.

  • Fjölbreytt vöruúrval og afslappað starfsumhverfi.

Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur8. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar