
BM Vallá
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu, steinsteyptum vörum, múr- og flotblöndum fyrir íslenskan byggingariðnað. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og stefnir fyrirtækið að kolefnishlutleysi árið 2030.
Við leggjum mikinn metnað í að skapa jákvætt starfsumhverfi og góða vinnustaðamenningu. Sem fjölþjóðlegur vinnustaður fögnum við fjölbreytileika, ólíkum bakgrunni og menningu. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði, möguleika til starfsþróunar ásamt því að starfrækt er öflugt fræðslukerfi. Starfsfólk fær góðan hádegismat sér að kostnaðarlausu en greiðir aðeins hlunnindaskatt. Öflugt skemmtanastarf og margvíslegir viðburðir standa öllum til boða allt árið um kring og er ávallt lögð áhersla á fjölskylduvænar skemmtanir. Öryggismál, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í hávegum haft og hvetjum við starfsfólk til að leggja rækt við andlega og líkamlega heilsu.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem á einnig Björgun-Sement. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.

Sölustjóri forsteyptra eininga og byggingalausna
Vilt þú byggja til framtíðar með okkur? Ef þú vilt láta til þín taka í ráðgjöf og sölu á sviði byggingalausna, þar sem áhersla er lögð á umhverfisvænni nálganir, þá viljum við heyra í þér.
Sölustjóri mun bera ábyrgð á að móta söluaðgerðir og leiða samstarf viðskiptavina, hönnuða, birgja og framleiðsludeildar.
Um er að ræða krefjandi og spennandi starfstækifæri fyrir réttan aðila í skemmtilegu og dýnamísku umhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tækni og/eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af sölu- eða viðskiptastjórnun
Þekking og reynsla úr byggingariðnaði
Þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð íslensku og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Sala og ráðgjöf á húseiningum, steypu og öðrum byggingarlausnum
Stjórnun og viðhald viðskiptasambanda
Tilboðs-, samninga- og reikningagerð
Vinna með þverfaglegum hópi viðskiptavina, hönnuða, framleiðsludeildar og birgja.
Greining og öflun nýrra viðskiptatækifæra
Gerð söluáætlana og eftirfylgni
Auglýsing birt22. september 2023
Umsóknarfrestur15. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Höfðasel 4, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSamningagerðSölumennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


