Sölustjóri ChitoCare beauty
ChitoCare beauty óskar eftir metnaðarfullum og reynslumiklum einstaklingi í starf sölustjóra á Íslandi.
Starf sölustjóra felur í sér að efla og styrkja sölu og þjónustu á ChitoCare beauty, lífvirkum húðvörum. Sölustjóri leiðir uppbyggingu og eftirfylgni á sölustarfi félagsins með áherslu á framúrskarandi þjónustu. Sölustjóri vinnur náið með öflugu sölu- og markaðsteymi ChitoCare beauty.
- Efla og styrkja sölu ChitoCare beauty
- Ábyrgð á eftirfylgni söluáætlana
- Tengiliður við innkaupastjóra verslana
- Pantanir og birgðahald
- Vinna við uppsetningu og viðhald markaðsefnis
- Þjálfun sölufólks og starfsfólks verslana
- Utanumhald vegna viðburða og tilboðsdaga (t.d. Tax Free)
- Öflun nýrra viðskiptavina á viðeigandi sviðum
- Vaktaplan fyrir söluteymi
- Önnur tilfallandi verkefni
- Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af sölu- og þjónustuþjálfun
- Afburða samskipta- og samstarfshæfileikar
- Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð almenn tölvukunnátta, reynsla í Klaviyo og Shopify er kostur
Primex ehf. er sjávarlíftæknifyrirtæki sem er leiðandi í heiminum í framleiðslu á hágæða kítósani, náttúrulegum lífvirkum trefjum. Nýtingin á kítósan fjölliðunni er sjálfbær og skilar sér í margverðlaunuðum lífvirkum húðvörum ChitoCare beauty. Markmið okkar er að stunda vísindalega þróun og nýsköpun sem miðar að heilbrigðri og náttúrulega fallegri húð. Primex er handhafi Nýsköpunarverðlauna Íslands.