Einstaklingsráðgjafi
Sérðu þig hjá okkur?
Það er okkur hjá TM kappsmál að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu og við erum stolt af því að viðskiptavinir TM mælast ánægðari en viðskiptavinir annarra tryggingafélaga eftir að hafa lent í tjóni.* Við leggjum okkur fram við að gæta þess að öll séu með rétta vernd á hverjum tíma og grípum ef eitthvað kemur fyrir.
Við leggjum mikla áherslu á ánægju starfsfólks, bjóðum upp á frábæran morgun- og hádegismat ásamt góðu kaffi og veitum starfsfólki góð kjör á tryggingarnar sínar. TM er líka á lista yfir fyrirmyndar fyrirtæki hjá VR og framúrskarandi fyrirtæki hjá CreditInfo.
Við auglýsum nú laust starf ráðgjafa í einstaklingsþjónustu. Við leitum að jákvæðum einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfileika, ríka þjónustulund og mikinn metnað. Sérðu þig hjá okkur?
- Þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina
- Ráðgjöf og sala til einstaklinga
- Tilboðsgerð og útgáfa tryggingaskírteina
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af þjónustustörfum og/eða ráðgjöf
- Rík þjónustulund, lipurð í samskiptum og góð aðlögunarhæfni
- Sjálfstæði, frumkvæði og metnaður í starfi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Önnur tungumálakunnátta kostur