Véltindar
Véltindar

Sölustjóri atvinnubíla

Véltindar ehf. leita að öflugum og drífandi sölustjóra til að leiða sölu á atvinnubílum og lausnum fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina. Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á sölu, góðan skilning á þörfum fyrirtækja og stofnana og nýtur þess að byggja upp langtímasambönd við viðskiptavini.

Sölustjóri atvinnubíla ber ábyrgð á sölu á breiðum skala atvinnubíla, allt frá sendibílum og rútum yfir í stærri bílaflota og sérhæfðar lausnir fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og verktaka. Viðkomandi þarf að vera sýnilegur á markaði, virkur í að heimsækja viðskiptavini, bóka fundi, greina þarfir og fylgja eftir sölutækifærum frá fyrstu snertingu til samningsgerðar.

Véltindar eru umboðsaðili fyrir öflug vörumerki á borð við IVECO sendi- og pallbíla, King Long rútur, Rosero rútur, Piaggio pallbílar, Krone, Hyundai lyftara og fleiri vörumerki á Íslandi. Véltindar ehf. er staðsett að Álhellu 7 í Hafnarfirði.

Sjá nýlega umfjöllun í Viðskiptablaðinu um Véltinda: Véltindar af­hent hátt í 30 hóp­ferða­bíla frá King Long

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Leiða og þróa söluteymi Véltinda og bera ábyrgð á áframhaldandi uppbyggingu sölustarfs fyrirtækisins
  • Sækja ný viðskiptatækifæri á markaði með markvissum hætti
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við núverandi og nýja viðskiptavini
  • Heimsækja fyrirtæki, sveitarfélög, verktaka og aðra lykilviðskiptavini
  • Greina þarfir viðskiptavina og leggja fram hagkvæmar og faglegar lausnir
  • Fylgja eftir fyrirspurnum, tilboðum og samningum
  • Taka þátt í stefnumótun, markaðsstarfi og uppbyggingu sölustarfs
  • Samstarf við erlenda birgja
  • Vinna náið með öðrum deildum fyrirtækisins til að tryggja góða þjónustu og afhendingu

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sölu- og viðskiptastjórnun eða sambærilegu starfi
  • Reynsla af B2B sölu er mikill kostur
  • Þekking á atvinnubílum, tækjum, flutningum eða skyldum greinum er kostur
  • Rík þjónustulund og færni í að byggja upp traust viðskiptasambönd
  • Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
  • Góð samskiptafærni og hæfni til að koma lausnum skýrt á framfæri
  • Skipulagshæfni og geta til að fylgja stórum sölumálum eftir frá upphafi til enda
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslensku og enskukunnátta
  • Gild ökuréttindi

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]).

Auglýsing birt31. júlí 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Álhella 7
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar