SecureIT
SecureIT
SecureIT

Sérfræðingur í sölu og viðskiptaþróun

SecureIT leitar að sérfræðingi í sölu og viðskiptaþróun. Í starfinu ertu í beinum samskiptum við núverandi og tilvonandi viðskiptavini og samstarfsaðila hérlendis og erlendis. Þitt hlutverk er að rýna hvernig þjónustuframboð SecureIT hækkar öryggisstig viðskiptavina og kynna þær aðferðir sem SecureIT beitir til þess að ná og viðhalda því öryggis- og hlítingarstigi sem nauðsynlegt er og koma þannig í veg fyrir netárásir glæpamanna.

Við tökum jafnt á móti þeim sem þekkja sölutækni, netöryggi og upplýsingatækni vel og viljum ástríðufulla duglega söluaðila og þá sem eru til í að læra!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Finna möguleg viðskiptatækifæri og viðskiptavini sem gætu haft gagn af þjónustu SecureIT og hafa samband við þau, innanlands og erlendis.
  • Bera ábyrgð á söluferlinu frá fyrsta samtali til undirritaðs samnings.
  • Kynna þjónustu SecureIT fyrir þeim sem taka ákvarðanir, þar með talið innbrotsprófanir, ráðgjöf, úttektir og hvers kyns öryggisþjónustur SecureIT.
  • Vinna með tæknifólkinu okkar að tilboðum sem eru sniðin að hverjum viðskiptavini og gefa viðskiptavinum okkar sem mest virði og lækkun netöryggisáhættu þeirra.
  • Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini SecureIT, mæta breytilegum þörfum þeirra og stuðla að áframhaldandi netöryggissamstarfi við SecureIT.
  • Koma fram fyrir hönd SecureIT á ráðstefnum og hvers kyns viðburðum og byggja upp tengsl í bransanum.
  • Halda yfirsýn yfir söluna og skila reglulegu yfirliti um stöðu verkefna og tekjuáætlun.
  • Virkt hlutverk gagnvart samstarfsaðilum.
  • Virkt hlutverk í að koma SecureIT á framfæri t.d. á samfélagsmiðlum er æskilegt.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking á upplýsingatækni og mikill styrkur að hafa þekkingu á netöryggi.
  • Reynsla af sölu eða viðskiptaþróun á þessum sviðum er skýr styrkur.
  • Þú talar og skrifar vel bæði íslensku og ensku.
  • Góð samskiptahæfni og samstarfshæfileikar eru mikilvægir í starfinu. 
  • Sjálfstæð vinnubrögð, dugnaður og frumkvæði.
  • Ástríða, metnaður og dugnaður til að ná markmiðum.
  • Reynsla af CRM kerfum eins og HubSpot eða Salesforce er kostur.
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi er æskilegt.
Fríðindi í starfi
  • Frábært samstarfsfólk. 
  • Tækifæri til starfsþróunar.
  • Mjög góð vinnuaðstaða.
  • Sveigjanlegur vinnutími.
  • Árangurstengdar bónusgreiðslur.
Í boði
  • Samkeppnishæf grunnlaun.
  • Sveigjanlegur vinnutími.
  • Sími, nettenging ofl.
  • Ökutækjastyrkur.
  • Bónus þegar markmiðum er náð.
  • Tækifæri til læra og stuðla að starfsþróun.
  • Frábært reynslumikið stuðningsríkt samstarfsfólk.
  • Þú hefur raunveruleg áhrif á netöryggi á Íslandi.
Um SecureIT

SecureIT er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki í netöryggi á Íslandi og á alþjóðavísu. Fyrirtækið sérhæfir sig í innbrotsprófunum, öryggisstjórnun og áhættustýringu, öryggisstjóra í útleigu og hvers kyns öryggisþjónustum til að hækka og viðhalda öryggisstigi viðskiptavina okkar.

SecureIT hefur unnið með fjármálafyrirtækjum, flugfélögum, orkufyrirtækjum, heilbrigðisgeiranum og menntakerfinu og öðrum mikilvægum innviðum frá 2017 bæði innanlands og erlendis.

Nánari upplýsingar: [email protected]

Auglýsing birt29. júlí 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Höfðabakki 9B
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HubSpotPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar