
Nói Síríus
Nói Síríus er rótgróið og öflugt fyrirtæki á matvælamarkaði. Hjá Nóa Síríus starfar samhentur hópur um 120 starfsmanna sem hefur það sameiginlega markmið að gleðja bragðlauka þjóðarinnar. Til þess er fjöldi sælgætistegunda framleiddur í glæsilegum húsakynnum fyrirtækisins að Hesthálsi 2-4.
Síríus súkkulaðið hefur verið ómissandi hluti af hátíðarstundum Íslendinga í tæp níutíu ár og Nói Síríus einsetur sér að vera í hópi leiðandi fyrirtækja á sínu sviði. Það gerir fyrirtækið með því að bjóða eftirsóknarverða gæðavöru og þjónustu sem standast ýtrustu kröfur viðskiptavina á alþjóðlegan mælikvarða. Vöruþróun skipar að auki stóran sess í starfsemi Nóa Síríusar og nýjungar fyrirtækisins líta reglulega dagsins ljós í hillum verslana, Íslendingum til mikillar ánægju.
Nói Síríus telur að bestum árangri sé náð í starfi þegar þekking og færni starfsfólks fá að njóta sín og einstaklingurinn finnur til ábyrgðar. Í slíku andrúmslofti leggjast allir á eitt og skapa traustan grunn að öflugum rekstri.
______
Nói Síríus is a well-established and powerful company in the Icelandic food industry. Nói Síríus has a tight-knit workforce of about 120 employees who share the goal of tickling the taste buds of Icelanders. Many different kinds of sweets are produced in the company’s impressive facilities at Hestháls 2-4.
Síríus chocolate has been an indispensable part of Icelandic festivities for close to ninety years, and Nói Síríus is committed to being a leader in its field. The company aims to achieve this goal this by providing quality products and services that meet customers' highest standards according to international criteria. Product development is also a major part of Nói Síríus’ activities, and new and innovative products are introduced regularly, to the great delight of Icelandic consumers.
At Nói Síríus, we believe that the best results will be achieved when our staff can freely apply their knowledge and skills, and when each individual has a sense of responsibility. In our work environment we have a common cause: to lay a solid foundation and build a robust, dynamic operation.
______
Nói Síríus to firma z silnie ugruntowaną pozycją w islandzkiej branży spożywczej. Zgrany zespół 120 pracowników łączy wspólny cel, jakim jest dostarczanie Islandczykom niezapomnianych wrażeń smakowych. Różne rodzaje słodyczy są produkowane w imponujących zakładach firmy przy ulicy Hestháls 2-4.
Czekolada Síríus już od prawie 90 lat towarzyszy Islandczykom w celebrowaniu ważnych chwil, a sama firma Nói Síríus przez cały czas stara się pozostać liderem w branży. Aby osiągnąć ten cel, firma zapewnia klientom wysokiej jakości produkty i usługi, które spełniają ich najwyższe oczekiwania i są zgodne z międzynarodowymi standardami. Do głównych obszarów działalności Nói Síríus należy również poszerzanie gamy produktów pozwalające regularnie wprowadzać na rynek nowe i innowacyjne wyroby, które zachwycają islandzkich konsumentów.
W Nói Síríus wierzymy, że najlepsze rezultaty przynosi zapewnienie personelowi swobody w wykorzystaniu posiadanej wiedzy i umiejętności, a także poczucie obowiązku u każdego pracownika. W naszym środowisku pracy łączy nas wspólny cel: zbudowanie solidnych podwalin pod intensywne i dynamiczne działanie.

Söluráðgjafi nýrra sölurása
Vilt þú starfa með sætustu vörumerkjum landsins?
Nói Síríus leitar að öflugum og metnaðarfullum söluráðgjafa sem hefur mikið frumkvæði og brennandi áhuga á sölu og uppbyggingu viðskiptasambanda.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem þú færð tækifæri til að vinna með mörgum af vinsælustu vörumerkjum landsins og skapa sýnilegan árangur í ört vaxandi umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Byggja upp og þróa viðskiptasambönd við nýja og núverandi viðskiptavini
- Greina ný vaxtatækifæri og vinna að innleiðingu nýrra sölurása
- Skipuleggja og framkvæma sölufundi og samningaviðræður
- Ábyrgð á söluþróun, vöruframboði, herferðum og eftirfylgni með árangri
- Vinna náið með framleiðslu-, markaðs- og vörustýringarteymum að arðbærum vexti
- Greining gagna og umbreyta þeim í skýrar upplýsingar og tækifæri
- Taka þátt í verkefnum tengdum áætlanagerð, spám og markmiðasetningu
- Vera virkur þátttakandi í þróun nýrra viðskiptaleiða, m.a. innan netverslunar, fyrirtækjasölu, útflutnings og annarra sérhæfðra söluleiða
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af eða áhugi á sölu, ráðgjöf og þjónustu
- Sterk samskipta- og kynningarhæfni
- Greiningarhæfni og góð viðskiptaleg innsýn
- Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í hröðu og krefjandi umhverfi
- Góð samskiptafærni, drifkraftur, jákvætt viðhorf og þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Lykilhlutverk í uppbyggingu og þróun nýrra sölurása
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni í vaxandi framleiðslufyrirtæki
- Öflugt teymi og gott starfsumhverfi
- Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunarNiðurgreiddur morgun- og hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Heilsufarsskoðun og velferðarþjónusta frá utanaðkomandi fagaðila
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins
- Virkt starfsmannafélag
- Golfklúbbur
- Píluklúbbur
- Afsláttur af vörum fyrirtækisins
Auglýsing birt2. júní 2026
Umsóknarfrestur17. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hestháls 2-4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DrifkrafturFrumkvæðiHreint sakavottorðMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs
Sólar

Starfsmaður í áfyllingum í stórmörkuðum, Reykjanesbæ.
Red Bull / Steindal Heildverslun

BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í lagnaefni
Byko

BYKO Akureyri: Sölufulltrúi í timbri
Byko

Ráðgjafi í verslun - Höfuðborgasvæðið
Bílanaust

Akureyri: Hluta- og helgarstarf
Húsasmiðjan

Ráðgjafi í Reykjanesbæ
Sjóvá

Sales Engineer
JBT Marel

Weekday - Sales Advisor 5H/week Temporary
Weekday

Söluráðgjafi í hlutastarfi - ELKO Akureyri
ELKO

Framkvæmdastjóri Viðskipta og samfélags
Landsnet

Nettó Ísafirði - Aðstoðarverslunarstjóri
Nettó