Skanva ehf
Skanva ehf
Skanva ehf

Söluráðgjafi með iðnþekkingu

Skanva.is leitar að reyndri og öflugri sölumanneskju í frábært teymi okkar á Íslandi.

Um er að ræða starf við tilboðsgerð og ráðgjöf er varðar sérsmíðaða glugga og hurðir, bæði á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Sýningarsalur okkar í Mörkinni er opinn alla virka daga á milli 9 og 16 og þar tökum við vel á móti viðskiptavinum okkar í kaffibolla og gluggaspjall 🙂
Við leggjum mjög mikið upp úr því að veita viðskiptavinum okkar góða og skilvirka þjónustu og leitum því að mjög samviskusömum einstaklingi með framúrskarandi samskiptafærni.
Starfsfólk Skanva fær að sérhæfa sig í verkefnum sem hæfa persónulegum styrkleikum þeirra og fá þannig tækifæri til að vaxa í starfi.

Frekari upplýsingar veitir Guðrún Harpa. Tölvupóstur: [email protected] - Sími: 5588400

Helstu verkefni og ábyrgð

Ráðgjöf við viðskiptavini

Símsvörun

Taka á móti gestum í sýningarsal

Tilboðsgerð

Samskipti við verksmiðju

Sala og eftirfylgni

Taka þátt í þróun vefverslunar okkar og gera hana notendavænni fyrir íslenskan markað

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af sölu í byggingariðnaði kostur

Mikill kostur ef viðkomandi hefur einhvers konar verkmenntun

Mjög góð þjónustulund

Frábær samskiptahæfni - kurteisi og jákvæðni

Samviskusemi  

Góð tölvukunnátta

Skilyrði að viðkomandi hafi góða íslensku- og enskukunnáttu

Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst, en við erum þó tilbúin til að bíða eftir rétta einstaklingnum.

Fríðindi í starfi

Góður vinnutími

Skemmtilegt og samheldið teymi vinnufélaga

Þægilegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi

Tölva og sími

Endurmenntunar- og námskeiðsstyrkir til að efla hæfni starfsfólks

Auglýsing birt16. apríl 2025
Umsóknarfrestur5. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
DanskaDanska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Mörkinni 1, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar