Brimborg
Brimborg
Brimborg

Söluráðgjafi Mazda hjá Brimborg

Mazda á Íslandi | Brimborg leitar að hæfileikaríkri og duglegri sölumanneskju í starf söluráðgjafa Mazda. Íslendingar hafa tekið Mazda bílunum fagnandi enda fáguð hönnun, gæði og áreiðanleiki, aðalsmerki japanska bílaframleiðandans. Starfið er lifandi, skemmtilegt og krefjandi í senn. Einstakt tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling með framúrskarandi söluhæfileika og einstaka þjónustulund til að ganga til liðs við teymi Mazda á Íslandi.

Við leitum að manneskju sem þykir krefjandi umhverfi spennandi og er tilbúin að nýta nýjustu tækni til að veita framúrskarandi þjónustu sem er í stöðugri þróun, hefur náttúrulega ástríðu fyrir að gera vel, er samviskusöm og hefur mikinn metnað fyrir vörumerkið Mazda.

Vinnutími er alla virka daga frá mán-fim frá 08:55-17:00 og fös til 16:15.
Annan hvern laugardag frá 11:55-16:00.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.

Menntunar- og hæfniskröfur
Skilningur á og færni í notkun CRM kerfa
Skilningur á mikilvægi eftirfylgni við sölu og þjónustu
Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
Færni til að setja sér sölumarkmið og fylgja þeim eftir
Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
Færni í notkun og skilningur á kerfum eins og Office, Navision, Dynamics
Gilt bílpróf og ástríða fyrir bílum
Góð íslensku og enskukunnátta
Heiðarleg, áreiðanleg og vönduð vinnubrögð
Stúdentspróf, iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starf
Helstu verkefni og ábyrgð
Sala og ráðgjöf við kaup á nýjum Mazda bílum
Sala og ráðgjöf við kaup á notuðum bílum
Skráning viðskiptatækifæra í CRM kerfi
Tryggja framúrskarandi eftirfylgni viðskiptatækifæra
Tilboðs- og skjalagerð fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Uppítaka á notuðum bílum
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt27. september 2021
Umsóknarfrestur18. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bíldshöfði 8, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar