
Vinnvinn
Árangur og farsæld viðskiptavina og samstarfsaðila er lykilatriði í okkar velgengni og það sem við brennum fyrir. Við erum þekkt fyrir að skapa virði, veita faglega ráðgjöf og sérfræðiþekkingu.
Með skapandi nálgun og starfsgleðina að vopni leitum við sífellt betri leiða að bættum árangri fyrir samstarfsaðila okkar.
Við höfum þrjú grunngildi sem skilgreina hver við erum og hvað við gerum: Ástríða – Árangur – Sköpunargleði.
Söluráðgjafi í gluggum á fyrirtækjasviði
Traust og öflugt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu leitar að drífandi og öflugum einstaklingi í starf söluráðgjafa. Viðkomandi verður hluti af sterku teymi sérfræðinga á sínu sviði og fær tækifæri til að setja sitt mark á hópinn.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Sala og ráðgjöf á sérlausnum og sérpöntunum til viðskiptavina.
- Afgreiðsla, tilboðsgerð og eftirfylgni.
- Samskipti við erlenda og innlenda birgja.
- Önnur tilfallandi störf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Þekking á byggingaefni og tengdum vörum er kostur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Áhugi á verslun og þjónustu.
- Frumkvæði, góð skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
- Góð tölvukunnátta, þekking á AX og/ eða teikniforritum er kostur.
- Menntun sem nýtist í starfi, svo sem iðnmenntun er kostur.
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði.
Við bjóðum:
- Góð laun í boði.
- Frábær vinnuaðstaða.
- Heitur matur í hádeginu.
- Stuðningur við endurmenntun og þróun í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars næstkomandi.
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Garðar Ó. Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur29. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónusta og sala hjá DS Lausnum
DS lausnir

Sölustjóri Áltaks
Áltak

Sölukona/Sölumaður
DÚKA

Sölumaður hjá Furu ehf
Fura ehf.

Viðskiptastjóri
Dekra Innflutningur

Sumarstörf - söluráðgjafar
Bílaumboðið Askja

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Sumarstarf sölufulltrúi
NormX

Sales & Marketing Manager – Kombucha Iceland
Kúbalúbra ehf.

Sölustarf í persónu (Face to face) - Sumarstarf - Akureyri
Takk ehf

Sumarstarf á Hvolsvelli // Summerjob in Lava Centre Hvölsvollur
LAVA Centre

Viðskiptastjóri á sviði viðskiptavina
Eik fasteignafélag hf.