

Sölumaður á vinnuvélum óháð búsetu
Verkfæri ehf. óskar eftir öflugum sölumanni með góða samskiptafærni og þjónustulund til að styðja við söluteymi fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt verkefni í skemmtilegu starfsumhverfi þar sem reynir á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og gott skipulag. Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins. Eftirsóknarvert er að fá til liðs við okkur þá sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina og hafa jákvætt hugarfar.
Þetta starf bíður uppá vinnu óháð búsetu sem þýðir að réttur aðili getur unnið heiman frá sér og myndi eiga fundi með söluteymi reglulega.
Vinsamlegast hafið samband með tölvupósti á [email protected] fyrir frekari upplýsingar.
Íslenska
Enska










