66°North
66°North
66°North

Sölufulltrúi á Akureyri

66°NORÐUR leitar að dugmiklum einstaklingum í verslanir 66°Norður á Akureyri. Um er að ræða hlutastarf með möguleika á fullu starfi.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°NORÐUR en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Í dag starfa tæplega 500 manns hjá Sjóklæðagerðinni og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin 11 verslanir undir vörumerkinu 66°NORÐUR og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir þar sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð skrifstofa í Lundúnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta viðskiptavini
  • Áfylling og framsetning vara
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur
Fríðindi í starfi

Starfsmenn  66°NORÐUR fá góðan starfsmannaafslátt.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skipagata 9, 600 Akureyri
Hafnarstræti 94, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar