66°North
66°North
66°North

Sölufulltrúi 66° Norður

66°Norður leitar að dugmiklum einstaklingum í verslanir 66°Norður á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða fullt starf.

Sjóklæðagerðin hf. er eitt elsta framleiðslufyrirtæki Íslands.

Árið 1926 hóf fyrirtækið framleiðslu á sérstökum hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og fiskverkunarfólk á norðurslóðum en seinna bættist við vörulínu fyrirtækisins vinnufatnaður fyrir fólk í landi.

Rætur fyrirtækisins liggja því í framleiðslu sjó- og vinnufatnaðar og er fyrirtækið afar stolt af þeirri arfleifð sinni. Í dag er hönnun og framleiðsla útivistarfatnaðar kjarninn í starfsemi fyrirtækisins sem framleiddur er undir vörumerkinu 66°Norður en fyrirtækið leggur mikið upp úr gæðum vörunnar þar sem eingöngu eru notuð bestu fáanlegu efnin í framleiðsluna.

Í dag starfa tæplega 500 manns hjá Sjóklæðagerðinni og starfar fyrirtækið í fjórum löndum, á Íslandi, í Danmörku, Bretlandi og Lettlandi. Á Íslandi rekur Sjóklæðagerðin 11 verslanir undir vörumerkinu 66°Norður og í Kaupmannahöfn eru tvær verslanir þar sem sú fyrsta opnaði í lok árs 2014. Árið 2019 var opnuð skrifstofa í Lundúnum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta viðskiptavini
  • Áfylling og framsetning vara
  • Önnur tilfallandi verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Framúrskarandi hæfileikar í mannlegum samskiptum
  • Brennandi áhugi á útivist og hreyfingu
  • Áhugi á sölumennsku
  • Mjög góð enskukunnátta
  • Kunnátta í Norðurlandamáli, þýsku, kínversku eða öðrum tungumálum er kostur
  • Reynsla af sölustörfum kostur
Fríðindi í starfi

Starfsmenn  66°Norður fá góðan starfsmannaafslátt.

Auglýsing birt20. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Verslanir 66° Norður á Höfuðborgarsvæðinu
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar