
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu og þjónustu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, langtíma- og sendibílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.

Sölu- og þjónustufulltrúi í bílaleigu
Bílaleigurnar Dollar, Thrifty og Saga leita að röskum, reynslumiklum starfsmanni í starf sölu- og þjónustufulltrúa á nýrri starfsstöð við Flugvelli 20 í Reykjanesbæ. Ferðaþjónustan er að hefja sig til flugs og við bjóðum upp á skemmtilegt, fjölbreytt starfsumhverfi í glænýju húsnæði með frábærri aðstöðu fyrir starfsmenn.
Unnið er á vöktum 15. maí -14. okt frá kl. 07:00-18:00 og
15. okt -14. maí frá kl. 08:00-18:00, um helgar 09:00-18:00 (2,2,3).
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Sæktu um og fáðu nánari upplýsingar á www.brimborg.is (laus störf), fyrir 15. júlí.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Færni við að veita góða þjónustu til kröfuharðra viðskiptavina
Færni í notkun tölva
Gilt bílpróf
Helstu verkefni og ábyrgð
Afhending bíla og sala fylgiþjónustu til erlendra og innlendra viðskiptavina
Móttaka bíla við leiguskil
Samskipti við viðskiptavini í síma og rafrænt
Móttaka bókana og úthlutun bíla á bókanir
Auglýsing birt25. maí 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bíldshöfði 4-6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

SALES ASSISTANT - Remember Reykjavík & Friends
Remember Reykjavík

Account Manager
Teitur

Þjónustufulltrúi | Dineout & Sinna
Dineout ehf.

Afgreiðsla og útstillingar
Bóksala stúdenta

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Söluráðgjafi - fjölbýli og fyrirtæki
Ísorka

Sölufulltrúi, lager- og dreifing
Mekkano heildsala

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar í afleysingar
ICEWEAR

Þjónusturáðgjafi í varahlutadeild
Bílaumboðið Askja

Þjónustu- og sölufulltrúi hjá Myigloo og Leiguskjóli
Leiguskjól

Ert þú tækninörd með þjónustuhjarta?
Sýn