
Skrifstofustjóri upplýsingatækniþjónustu
Viltu leiða stærsta upplýsingatækniumhverfi Íslands ?
Þjónustu- og nýsköpunarsvið leitar að traustum og framsýnum stjórnanda í starf skrifstofustjóra upplýsingatækniþjónustu Reykjavíkurborgar. Viðkomandi er einn af lykilstjórnendum sviðsins og situr í yfirstjórn þess.
Markmið starfsins er að sjá til þess að upplýsingatækniþjónusta Reykjavíkurborgar sé í takt við þarfir notenda og sé aðgengileg, markviss, heildstæð og í samræmi við stefnu borgaryfirvalda. Að sjá til þess að högun á upplýsingatækni sé í takti við þarfir hverju sinni, standist ítrustu kröfur um öryggi og stöðugleika og styðji við framþróun í starfsemi hennar. Einnig er meginhlutverk skrifstofustjóra að bera faglega og fjárhagslega ábyrgð á verkefnum skrifstofunnar og tryggja öryggi upplýsingatækniinnviða og rekstur upplýsingatæknilausna. Einnig mun viðkomandi bera ábyrgð á að móta, þróa og innleiða framtíðarsýn á upplýsingatækni borgarinnar.
Framundan eru spennandi breytingar í starfsemi skrifstofunnar sem fela m.a. í sér að færa reksturinn yfir í nýtt rekstrarumhverfi í gagnaveri í kjölfar endurhönnunar sem miðar að því að upplýsingatæknikerfi borgarinnar verði ávallt rekin í fyrsta flokks umhverfi.
Sem skrifstofustjóri upplýsingatækniþjónustu munt þú ...
- Bera ábyrgð á faglegu starfi skrifstofunnar
- Bera ábyrgð á fjárhagslegum rekstri skrifstofunnar
- Bera ábyrgð á mannauðsmálum skrifstofunnar
- Bera ábyrgð á útgáfu og samþykkt reikninga skrifstofunnar
- Bera ábyrgð á mælikvörðum, eftirliti og markmiðum skrifstofunnar
- Bera ábyrgð á öryggi og uppitíma upplýsingatæknikerfa borgarinnar
- Taka virkan þátt í þéttu samstarf stjórnenda og starfsmanna sviðsins
- Taka virkan þátt í stefnumótun og innleiðingu stefna sviðsins
- Vera í hlutverki forgöngumanns um góðar venjur og samskipti
- Fylgja verklagi, reglum og lögum
- Bera ábyrgð á umbótaverkefnum skrifstofunnar
- Sinna persónulegri endurmenntun

