Tækniskólinn
Tækniskólinn
Tækniskólinn

Skólastjóri skip/vél

Tækni­skólinn leitar að öfl­ugum leiðtoga í starf skóla­stjóra Skip­stjórn­ar­skólans og Vél­tækni­skólans. Skól­arnir eru und­ir­skólar Tækni­skólans þar sem kenndar eru skip­stjórn­ar­greinar, vél­stjórn­ar­greinar, málmiðngreinar, flug­virkjun og jarðvirkjun. Við leitum að leiðtoga með víðtæka reynslu úr skóla- og atvinnu­lífinu sem ber umhyggju fyrir nem­endum og starfs­fólki og hefur brenn­andi áhuga á skóla­starfi og þróun þess.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun í skipstjórnar- eða véltæknigreinum eða önnur menntun sem nýtist í starfi
Réttindi til að kenna á framhaldsskólastigi
Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar
Þekking og brennandi áhugi á skólastarfi
Jákvætt viðhorf, þjónustulund og lipurð í samskiptum
Frumkvæði, eldmóður og skapandi hugsun
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti og góð enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Veitir Skipstjórnarskólanum og Véltækniskólanum forstöðu en í þeim starfa um 25 manns og eru nemendur um 400 talsins
Sér til þess að kennsluhættir og inntak náms sé í fremstu röð hverju sinni
Ber ábyrgð á að kennsla og námsmat sé í samræmi við lög og reglur
Annast innritun, mat á námi og undirbýr útskrift í samvinnu við aðra stjórnendur
Upplýsingagjöf og samskipti við nemendur og forráðamenn
Skipuleggur vinnutilhögun innan skólanna og ber ábyrgð á ráðningum kennara og annarra starfsmanna
Leiðir umbótastarf og tekur þátt í stefnumótun skólans
Vinnur að þverfaglegu samstarfi innan og utan skóla
Auglýsing birt12. nóvember 2021
Umsóknarfrestur28. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Frakkastígur 27, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar