
Skólastjóri og fleiri lausar stöður
Sveitarfélagið Hornafjörður leitar að kennaramenntuðu starfsfólki í eftirtalin störf í litlum samreknum leik- og grunnskóla í Hofgarði í Öræfum. Öræfi liggja undir rótum Vatnajökuls í um eins og hálfs klukkustundar akstursfjarlægð frá Höfn þar sem gott samfélag fer ört vaxandi með tilheyrandi þörfum fyrir grunnþjónustu við barnafjölskyldur. Húsnæði er til staðar í næsta nágrenni við skólann.
Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar:
- Skólastjóri fyrir samrekinn leik- og grunnskóla.
- Grunnskólakennari í kennslu á yngsta stigi.
- Tvær stöður leikskólakennara/leiðbeinenda með reynslu af starfi með börnum á leikskólastigi.
Almennt skulu starfsmenn vera góðir í samskiptum, sveigjanlegir og viljugir að leysa af og aðstoða við kennslu og umönnun barna á báðum skólastigum.
Skólastjóri skal hafa leyfisbréf kennara og kennslureynsla er skilyrði. Viðbótarmenntun í stjórnun og/eða á sviði uppeldis- og menntunarfræða er kostur. Þá skal viðkomandi búa yfir frumkvæði, sjálfstæði og góðum skipulagshæfileikum.











