
Stykkishólmsbær
Stykkishólmur hefur á síðustu árum orðið að einum vinsælasta áfanga- og áningarstað landsins. Þar kemur margt til, ef til vill vegur þar þungt metnaður bæjarbúa fyrir að varðveita umhverfi sitt og sögu svo komandi kynslóðir fái notið þeirra á sama hátt og við gerum nú. Sú hugsun endurspeglast hvað best í miðbæ Stykkishólms sem óhætt er að vísa til sem safns gamalla húsa. Stykkishólmsbær fékk Skipulagsverðlaunin 2008, sem veitt eru af Skipulagsfræðifélagi Íslands, fyrir deiliskipulag miðbæjar, stefnu og framfylgd hennar og eru bæjarbúar ákaflega stoltir og þakklátir fyrir þá viðurkenningu.
Skólastjóri grunnskóla og tónlistarskóla
Leitað er að leiðtoga með mikinn metnað fyrir menntun barna og unglinga sem hefur framsækna sýn á skólastarf og hlutverk stjórnendateymisins við skólana og samvinnu þess. Lögð er áhersla á öfluga skólaþróun, hvetjandi starfsumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk og samstarf við aðila skólasamfélagsins.
Skólastjóri er yfirmaður skólanna, mótar og viðheldur staðblæ og menningu með tilstyrk starfsfólks og nemenda. Hann veitir faglega forystu og leiðir framsækið og skapandi skólastarf í samræmi við grunnskólalög, aðalnámskrá grunnskóla og tónlistarskóla, ásamt skólastefnu sveitarfélagsins 2022-2027.
Menntunar- og hæfniskröfur
Réttur til að nota starfsheitið kennari og reynsla af skólastarfi á grunnskólastigi eða í tónlistarskóla
Stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
Menntun í stjórnun eða sérhæfð hæfni skv. 5. gr. laga nr. 95/2019
Reynsla og þekking þar sem sérstök áhersla er lögð á sérhæfða hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu er æskileg
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi
Frumkvæði, fagmennska, skipulagshæfni og nákvæmni
Skýr framtíðarsýn í skólamálum
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
Dagleg stjórnun samrekins grunn- og tónlistarskóla
Leiða stjórnendateymi grunn- og tónlistarskóla
Ábyrgð gagnvart bæjarstjórn á að skólastarf sé í samræmi við lög, reglugerðir og gildandi aðalnámsskrá og skólastefnu hverju sinni
Ábyrgð á viðvarandi undirbúningi þróunar og stefnumörkunar
Forysta um þróun og umbætur í skólastarfinu og stefnumótun
Ábyrgð á mannauðsmálum
Ábyrgð á skólanámskrá skólanna, árlegri starfsáætlun, rekstraráætlun og öðrum áætlunum um skólastarfið
Skipulagning og stjórn skólaráðsfunda
Auglýsing birt17. febrúar 2023
Umsóknarfrestur20. mars 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 3, 340 Stykkishólmur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Kennari – Leikskólinn Hlíðarendi
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár
Leikskólinn Bláskógar

Leikskólakennari óskast
Helgafellsskóli

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Deildarstjóri óskast á Kópastein
Kópasteinn

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Kennari í íslensku sem öðru máli – Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stig – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir