Skólaliði í Sandgerðisskóla
Vilt þú taka þátt í uppbyggingu á ört stækkandi sveitarfélagi á Suðurnesjum?
Leitað er að kraftmiklum og hressum einstaklingi í starf skólaliða í Sandgerðisskóla. Um er að ræða 100% starf, kostur að geta hafið störf strax
Sandgerðisskóli er vel búinn, heildstæður fjölmenningarlegur grunnskóli með um 310 nemendur og við skólann starfar samheldinn hópur metnaðarfullra starfsmanna. Áhersla er lögð á náið samstarf er við Leikskólann Sólborg, félagsmiðstöðina Skýjaborg og Tónlistarskóla Sandgerðis.
Gildi skólans eru; vöxtur – virðing – vilji – vinátta.
Skólinn er heilsueflandi grunnskóli sem vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar með það að markmiði að allir fái tækifæri til að vera besta útgáfan af sjálfum sér í leik og starfi. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans, www.sandgerdisskoli.is
- Taka á móti nemendum í upphafi skóladags og líta eftir þeim í lok skóladags
- Sinnir gangavörslu og fylgist með nemendum í frímínútum úti og inni, á göngum
- Leiðbeina nemendum í samskiptum, reynir að sætta deilur og gætir þess að skólareglur séu virtar
- Aðstoðar nemendur ef með þarf við að ganga frá fatnaði sínum
- Sér um þrif og daglegar ræstingar skv. verkáætlunum, heldur húsnæði og lóð skólans hreinni og snyrtilegri
- Sinnir alþrifum á húsnæði skólans við skólabyrjun og skólalok
- Gera húsverði viðvart um um bilanir og ef efni eða áhöld vantar til ræstinga
- Aðstoðar nemendur á mataríma í matsal og við framreiðslu matar
- Umsjón með fötum og öðrum munum sem lenda í óskilum
- Aðstoðar við uppröðun og tilfærslu á húsgögnum og búnaði
- Reynsla úr sambærilegu starfi eða menntun sem nýtist í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Áhugi á að vinna með börnum
- Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfileikar
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfshæfileikar
- Almenn tölvukunnátta