

Skjalastjóri
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf skjalastjóra. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði skjala- og upplýsingamála í stofnun sem er leiðandi á sviði opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar.
Þjóðskjalasafn Íslands gegnir hlutverki framkvæmdaaðila opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar og er opinbert skjalasafn. Nú standa yfir mestu breytingar í starfsemi Þjóðskjalasafns um langt skeið, þar sem áhersla er lögð á stafræna umbreytingu, örugga varðveislu, gott aðgengi og sjálfbærni.
-
Dagleg umsýsla með skjalasafni Þjóðskjalasafns, þ.m.t. gerð og viðhaldi málalykils, skjalavistunaráætlunar, geymsluskrár, tilkynningu og afhendingu rafrænna gagnasafna til langtímavarðveislu.
-
Umsjón með rafrænu skjalavörslukerfi, þ.m.t. skráningu mála og málsgagna.
-
Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um skjalavörslu og skjalastjórn.
-
Mótun innanhússferla, verklags og stefnu í skjalamálum Þjóðskjalasafns.
-
Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
-
Háskólamenntun í skjalfræði, hagnýtri skjalfræði, sagnfræði, upplýsingafræði eða í hliðstæðri menntun áskilin.
-
Góð þekking og reynsla á opinberri skjalavörslu og skjalastjórn er nauðsynleg, þ.m.t. lögum og reglum þar um.
-
Þekking á rafrænum skjalavörslukerfum nauðsynleg.
-
Góð þekking og reynsla af frágangi og skráningu pappírsskjalasafna.
-
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er áskilin.
-
Reynsla af verkefnastjórnun er kostur.
-
Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum.
Íslenska
Enska
