

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Auglýst er eftir starfsfólki í helgarvinnu í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - neyslurýmið Ylju
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum/læknanemum og bráðatæknum með tilskylda reynslu og þekkingu í hluta eða fullt starf í skaðaminnkunarverkefni félagsins, neyslurýmið Ylju sem og Frú Ragnheiði. Einnig starfsfólki með félagslegan bakgrunn og/ eða reynslu af málaflokknum.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu.
Hvað er Ylja?
✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Standa vaktina í neyslurými ásamt öðru starfsfólki
- Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að
- Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar/læknanemar og bráðatæknar með tilskylda reynslu og þekkingu. Leyfi til að starfa á Íslandi nauðsynlegt.
- Starfsmaður með félagslegan bakgrunn og / eða reynslu af málaflokknum
- Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
- Góð samskiptahæfni og reynsla í vettvangsstarfi er kostur
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
- Hæfni til að vinna í notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur
📅 Umsóknarfrestur: Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]













