Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð

Sjúkraþjálfari

Ráðgjafar- og greiningarstöð auglýsir laust til umsóknar starf sjúkraþjálfara á sviði Langtímaeftirfylgdar. Á sviðinu er veitt þjónusta við börn og unglinga að 18 ára aldri sem þurfa sérhæfða eftirfylgd og ráðgjöf. Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks stofnunarinnar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mat, ráðgjöf og eftirfylgd á sviði hreyfifærni og þátttöku fatlaðra barna og unglinga
  • Mat á hreyfifærni barna með viðurkenndum próf- og matstækjum
  • Ráðgjöf til barna, fjölskyldna þeirra og annarra fagaðila t.d. á sviði daglegrar færni, notkunar hjálpartækja og aðgengi
  • Öflun þekkingar á tæknilausnum og hjálpartækjum fyrir markhóp stofnunarinnar
  • Gerð umsókna og skýrslna
  • Vinna í þverfaglegum teymum innan og utan stofnunar
  • Þátttaka í rannsókna- og fræðslustarfi innan og utan stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari
  • Þekking og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Auglýsing birt21. október 2024
Umsóknarfrestur28. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar