Gigtarfélag Íslands fta.
Gigtarfélag Íslands fta.
Gigtarfélag Íslands fta.

Gigtarfélag Íslands óskar eftir sjúkraþjálfurum

Gigtarfélag Íslands óskar eftir tveimur til þremur sjúkraþjálfurum í 100% starf. Möguleiki er á að skipta störfunum upp í 50 % störf. Gigtarfélag Íslands hefur undanfarið gengið í gegnum miklar breytingar. Nýr framkvæmdastjóri hefur störf fljótlega og félagið hefur flutt í nýuppgert og hentugt húsnæði í Brekkuhúsum 1 í Reykjavík þar sem aðgengi er til fyrirmyndar. Mikil tækifæri eru til að móta starfsemi sjúkraþjálfunardeildar félagsins á nýjum stað. Félagið er að ganga í gegn um mikla breytingatíma og færa sig til nútímalegri meðferðarstarfsemi og því er um spennandi starf að ræða.
Flestir skjólstæðingar sjúkraþjálfunarinnar er fólk á öllum aldri með gigtarsjúkdóma á og er þetta því spennandi tækifæri fyrir fólk sem hefur áhuga á gigt. Flestir eru í langtímameðferð og því gefst tækifæri til að vinna með hvern einstakling til lengri tíma. Félagið hefur yfir að ráða litlum sal þar sem hægt er að sinna hópþjálfun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka sjúklinga og meðferð ásamt öðru sem tilheyrir starfinu

Menntunar- og hæfniskröfur

» Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfara
» Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
» Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
»  Góð íslenskukunnátta

Auglýsing birt7. október 2024
Umsóknarfrestur22. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Brekkuhús 1, 112 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar