Heimastyrkur
Heimastyrkur

Sjúkraliði eða heilbrigðismenntaður fagaðili - hlutastarf

Heimastyrkur óskar eftir að ráða sjúkraliða, iðjuþjálfa, heilbrigðismenntaðan fagaðila eða aðila sem hefur lokið BS í iðjuþjálfunarfræðum við Háskólann á Akureyri í hlutastarf á dagvinnutíma í Lífsgæðasetrið St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði. Starfshlutfallið myndi vera til að byrja með á bilinu 30-60% með möguleika á auknu starfshlutfalli síðar meir.

Um er að ræða stöðu aðstoðarmanns iðjuþjálfa þar sem viðkomandi mun taka þátt í að veita meðferð undir leiðsögn og handleiðslu iðjuþjálfa. Þjónustan sem um ræðir er fyrir börn og fullorðna sem eru í þörf fyrir heilbrigðis- og velferðarþjónustu vegna sjúkdóma, fötlunar, færniskerðingar eða annarra ástæðna sem draga úr færni við iðju.

Umsækjandi þarf að vera íslenskumælandi, vera fær um að sýna frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð, búa að góðri samskiptafærni, hafa lokið menntun innan heilbrigðisvísinda og starfsreynsla tengt þjónustu eða endurhæfingu fyrir börn eða fullorðna æskileg. Þjónustan í starfi fer fram á starfsstöð Heimastyrks í Lífsgæðasetrinu St. Jó í Hafnarfirði og umhverfi þjónustuþega og byggir að miklu leyti á skynjun og Sensory Integration theory ásamt öðrum verkefnum tengt iðju og iðjuþjálfun.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl 2024 eða sem fyrst eftir það, sveigjanleiki í starfi í boði. Starfið er hluti af þeirri þjónustu sem er í boði hjá Heimastyrk og geta áhugasamir kynnt sér þjónustuúrvalið nánar inn á heimasíðunni www.heimastyrkur.is

Mikilvægt er að umsóknum fylgi ferilskrá með mynd og kynningarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi með diplómu á meistarastigi í handleiðslufræðum á netfanginu [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð

Þjálfun og meðferð fyrir börn og fullorðna með sjúkdóma, fatlanir og færniskerðingu undir leiðsögn og í samstarfi við iðjuþjálfa.

Menntunar- og hæfniskröfur

Heilbrigðismenntaður fagaðili með starfsleyfi frá Embætti landlæknis eða aðili með BS í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri sem ekki hefur lokið starfsréttindanámi.

Íslenskumælandi

Góð samskiptafærni og fagmennska

Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

Sveigjanleiki og lausnarmiðað viðhorf

Góð tölvufærni 

Hreint sakavottorð

Reynsla af starfi með börnum eða fullorðnum ákjósanleg

Auglýsing birt27. febrúar 2024
Umsóknarfrestur7. mars 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar