Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Sjúkraliðar - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og Mosfellsumdæmi óskar eftir að ráða sjúkraliða í heimahjúkrun í 80% sumarafleysingu frá og með 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða dag-, kvöld-, og helgarvaktir.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum. Sjúkraliðar bera ábyrgð á að vinna samkvæmt hjúkrunaráætlun sem lögð er til grundvallar hjúkrunarmeðferð skjólstæðinga. Sjúkraliðar veita skjólstæðingum og aðstandendum þeirra leiðbeiningar og fræðslu. Þeim ber að sinna öðrum verkefnum sem þeim er falið af teymisstjóra og taka þátt í þróunarverkefnum og gæðastarfi innan stofnunar. Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Sjúkraliði vinnur náið í teymi ásamt teymisstjóra, hjúkrunarfræðingi og öðrum sjúkraliðum. Teymisstjóri fer fyrir teyminu. Sjúkraliði mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Reynsla af heimahjúkrun æskileg
Mikil samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að vinna við heimahjúkrun
Sjálfstæði í starfi
Gilt ökuleyfi
Hreint sakavottorð
Góð íslensku og enskukunnátta
Auglýsing birt27. apríl 2022
Umsóknarfrestur30. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfabakki 16, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar