Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) veitir íbúum umdæmisins og öðrum, almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu í samræmi við lög og reglur á hverjum tíma.
Lögð er áhersla á virðingu, traust og fagmennsku. Velferð skjólstæðinga skal höfð að leiðarljósi. Stuðlað er að virkri sí- og endurmenntun starfsfólks.
HVE tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og aðrar menntastofnanir.
Kjarnastarfsemin skiptist á þrjú málefnasvið eftir meginviðfangsefnum.
Heilsugæslusvið
Læknisþjónusta, hjúkrun, geðheilbrigðisþjónusta, heilsuvernd, forvarnir, slysa- og bráðaþjónusta og annast sjúkraflutninga.
Hjúkrunarsvið
starfrækir hjúkrunarrými á starfsvæðinu þar sem slík þjónusta er ekki rekin af öðrum.
Sjúkrasvið
starfrækir umdæmissjúkrahús, almenn sjúkrarými og endurhæfingu.
Heilbrigðisumdæmi Vesturlands nær yfir
Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra.
Sjúkraflutningamaður Akranesi
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Akranesi óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann í dagvinnu með bakvaktarskyldu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér sjúkraflutninga, umhirðu og viðhald húsnæðis og tækja auk annarra tilfallandi daglegra verkefna sem viðkomandi sinnir í umboði við næsta yfirmann.
Í starfinu er notaður búnaður á borð við hjartalínurita, hjartastuðtæki, öndunargrímur og fleira sem nýtist við að aðstoða sjúklinga.
Sjúkraflutningamenn þurfa að geta unnið undir talsverðu álagi sem tengist því að koma að fólki í mjög erfiðum aðstæðum. Í starfi sjúkraflutningamanns er mikilvægt að þekkja faglegar takmarkanir og virða þagnarskyldu þegar við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðurkennt nám í sjúkraflutningum og starfsleyfi landlæknis er skilyrði.
- Gilt ökuskírteini og gild ökuréttindi til að stjórna vörubifreið (C eða C1-réttindi) er skilyrði.
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi og reynsla.
- Reynsla af störfum sjúkraflutningamanna og/eða reynsla af öðrum störfum í heilbrigðisgeiranum.
- Góð íslensku- og ensku kunnátta er skilyrði.
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur20. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Merkigerði 9, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar