Garðabær
Garðabær
Garðabær

Sjálandsskóli óskar eftir umsjónarkennara á yngsta stig

Sjálandsskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara á yngsta stig í fullt starf frá 1. ágúst 2024.
Sjálandsskóli er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk og er staðsettur í Garðabæ. Í skólanum eru 250 nemendur og starfsmenn eru um 60. Í Sjálandsskóla ríkir góður starfsandi þar sem allir starfsmenn vinna saman að því að byggja upp fjölbreytt og skapandi skólastarf. Aðstaða starfsfólks og nemenda er til fyrirmyndar. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi í teymisvinnu og samkvæmt skólastefnu Sjálandsskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag náms og kennslu nemenda á yngsta stigi
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendum
  • Vinnur að skólaþróun með stjórnendum og samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Teymisvinna
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Faglegur metnaður
  • Áhugi á skólaþróun
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af starfi í grunnskóla og/eða starfi með börnum er æskileg
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
  • Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn
Auglýsing stofnuð3. maí 2024
Umsóknarfrestur16. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Langalína 8, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar