Síminn
Síminn
Síminn

Síminn leitar að gagnaforritara (e. Data Engineer)

Síminn leitar að metnaðarfullum og lausnarmiðuðum gagnaforritara (e. Data Engineer) til að bætast í öflugt gagnateymi Tækniþróunarsviðs.

Sem gagnaforritari verður þú í lykilhlutverki í uppbyggingu og þróun gagnainnviða Símans - frá gagnaöflun og umbreytingu til mótunar gagnavöruhúss og sjálfvirkni í ferlum.
Hlutverkið snýr að því að tryggja að gögn séu áreiðanleg, vel skipulögð og aðgengileg fyrir greiningu, þjónustu og ákvörðunartöku.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á bæði tækni og gögnum, hugsar í ferlum og leitar stöðugt leiða til að bæta flæði, skilvirkni og nýtingu gagna í fyrirtækinu.
Ef þú hefur gaman af að vinna með stór gagnasöfn, vilt byggja og viðhalda traustum gagnainnviðum og hefur áhuga á nýjustu gagnatækni og sjálfvirknivæðingu ferla, þá erum við að leita að þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hanna, þróa og viðhalda gagnapípum og gagnainnviðum fyrirtækisins
  • Samþætta gögn úr mismunandi kerfum í gagnavöruhús og greiningarumhverfi
  • Tryggja gæði, rekjanleika og öryggi gagna í samvinnu við gagnastjóra og gagnavörð
  • Sjálfvirknivæða gagnastreymi og skýrslugerð til að tryggja skilvirkni og áreiðanleika (t.d. CI/CD)
  • Vinna með gagnagreinendum og gagnavísindamönnum að gagnasettum fyrir greiningu og AI
  • Greina og leysa tæknileg vandamál sem tengjast gagnainnviðum
  • Stöðugar umbætur á afköstum og áreiðanleika gagnalausna
  • Skil á tæknilegri skjölun og stuðningur við innleiðingu nýrrar tækni
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum, eða sambærileg reynsla
  • Reynsla af gagnainnviðum í skýi – t.d. Azure Data Factory, Databricks, Fabric eða AWS Glue
  • Þekking á SQL, Python eða öðrum tungumálum notuðum í gagnaflutning og umbreytingu
  • Reynsla af ETL/ELT-verkfærum og hugmyndafræði DataOps
  • Þekking á gagnalíkönum, gagnavöruhúsum og rekjanleika gagna (data lineage)
  • Skilningur á öryggi gagna, aðgangsstýringu og GDPR er kostur
  • Reynsla af sjálfvirknivæðingu og CI/CD flæðum er kostur
  • Sjálfstæði, nákvæmni og skipulagshæfni
Persónulegir eiginleikar
  • Góð samskiptafærni
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Góð tæknileg greiningarhæfni og vilji til að læra nýtt
  • Hæfileiki til að vinna í teymi og miðla flóknum tæknilegum hugmyndum á mannamáli
  • Færni í að forgangsraða, standa við tímalínur og sýna ábyrgð í verkefnum
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Aðrar upplýsingar

Síðan 1906 hefur Síminn tengt heimili og fyrirtæki á Íslandi við umheiminn. Við leggjum áherslu á að veita framúrskarandi þjónustu byggða á fyrsta flokks tækni. Við byggjum á sterkri liðsheild og kunnum að meta jákvætt, árangursdrifið og lausnamiðað hugarfar. Síminn vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk og lögð er mikil áhersla á vellíðan, hvetjandi umhverfi, tækifæri til vaxtar, jafnrétti og fjölbreytileika. 

Sótt er um starfið á vef Símans. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2025. 

Nánari upplýsingar veitir [email protected]

Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.

Auglýsing birt5. nóvember 2025
Umsóknarfrestur16. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hönnun gagnagrunnaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.TölvunarfræðingurPathCreated with Sketch.TölvuöryggiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar