Akureyri
Akureyri
Akureyri

Síðuskóli: Kennari með verkefnastjórn ÍSAT

Við Síðuskóla er laus til umsóknar 100% staða kennara með verkefnastjórn ÍSAT ásamt kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2025. Þetta er tímabundin ráðning skólaárið 2025-2026.

Síðuskóli starfar samkvæmt hugmyndafræði SMT-skólafærn, er Grænfánaskóli og hefur fengið viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Í skólanum er unnið með hvatningu og hrós sem er góð leið til að sýna börnum jákvæða athygli, kenna þeim æskilega hegðun og viðhalda henni.

Í Síðuskóla er sérdeild fyrir einhverfa nemendur og þjónustar hún þá nemendur sem búsettir eru á Akureyri og hlotið hafa einhverfugreiningu.

Í Síðuskóla sýnum við ábyrgð, virðingu og vináttu.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.siduskoli.is

Leitað er að jákvæðum, lausnamiðuðum og samviskusömum einstaklingi með mikinn metnað, sem sýnt hefur árangur í störfum sínum og leggur áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat ÍSAT nemenda sem þarfnast námsaðlögunar, í samvinnu við umsjónarkennara.
  • Heldur utan um og tekur á móti ÍSAT nemendum.
  • Heldur utan um og tekur þátt í foreldrasamstarfi í tengslum við ÍSAT nemendur.
  • Vinnur að og heldur utan um þróunarstarf í skólanum í tengslum við ÍSAT nemendur.
  • Tekur almennt þátt í þróunarstarfi skólans.
  • Situr í ÍSAT teymi grunnskóla Akureyrar í samvinnu við Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar.
  • Kennari með verkefnastjórn vinnur í samstarfi og samvinnu við aðra starfsmenn skólans og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart skólastjóra.
  • Kennari með verkefnastjórn ÍSAT fylgir stefnu skólans í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla.
  • Framhaldsmenntun í sérkennslu eða öðru námi sem nýtist í starfi er kostur.
  • Hefur á valdi sínu fjölbreyttar kennsluaðferðir sem taka mið af mismunandi þörfum, áhuga og getu nemenda.
  • Reynsla, hæfni og þekking á kennslu og námsaðlögun.
  • Reynsla, hæfni og þekking til að nýta upplýsinga- og tæknimennt í kennslu fyrir nemendur með íslensku sem annað tungumál.
  • Þekking og reynsla af teymisvinnu og teymiskennslu.
  • Þekking og/eða vilji til að starfa eftir hugmyndafræði SMT.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni í starfi og samskiptum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Að vera reiðubúinn til að leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Áhugi á þróunarstarfi.
  • Gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Gerð er krafa um vammleysi s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt13. júní 2025
Umsóknarfrestur24. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar