
Stekkjaskóli
Stekkjaskóli er nýr grunnskóli á Selfossi sem tók til starfa haustið 2021. Fyrsti áfangi nýbyggingar skólans var tekinn í notkun í mars 2023 og 2. áfangi var tekinn í notkun í janúar 2025. Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullbyggður verður skólinn fyrir rúmlega 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Stekkjaskóli er hannaður og byggður sem teymiskennsluskóli, með vel skipulögðum árgangasvæðum, góðum list- og verkgreinastofum, glæsilegu bókasafni og náttúrufræðistofu með stórum gróðurskála. Byggingin þykir með glæsilegri skólabyggingum á landinu.
Í Stekkjaskóla er lögð áhersla á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og nýsköpun, skapandi skólastarf, umhverfismál og jákvæðan skólabrag.
Stefnumörkun skólans tekur meðal annars mið af menntastefnu Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Sérkennari í Stekkjaskóla
Stekkjaskóli auglýsir eftir sérkennara í 100% stöðuhlutfall frá og með 1. ágúst 2026. Leitað er eftir metnaðarfullum kennara sem starfar í nánu samstarfi við aðra kennara í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Næsta haust er gert ráð fyrir um 430 nemendum í 1.-9. bekk. Fullsetinn verður skólinn fyrir um 500 nemendur í 1.-10. bekk.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklinga
- Ber ábyrgð á að nemendur njóti kennslu samkvæmt megin markmiðum aðalnámskrá grunnskóla
- Ber ábyrgð á að tryggja öryggi og velferð nemenda sinna
- Sérkennari vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við deildarstjóra
- Að taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Framhaldsmenntun á sviði kennslu- og uppeldisfræða eða sérkennslu er æskileg
- LOGOS-réttindi kostur
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni og áhugi á skólastarfi
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Auglýsing birt31. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Heiðastekkur 9
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli

Kennarastaða við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Deildarstjóri
Leikskólinn Hof

Kennari óskast til starfa
Leikskólinn Sjáland

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa
Þorláksskóli

Leikskólakennari
Heilsuleikskólinn Kór

Leikskólakennari óskast í Efstahjalla
Efstihjalli

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundamiðstöðin Miðberg

Kennari í Andabæ
Borgarbyggð

Staða kennara/leiðbeinanda við Reykhólaskóla lausa til umsóknar.
Reykhólahreppur

Leikskólinn Lundarsel-Pálmholt: Leikskólakennari eða háskólamenntaður starfsmaður
Akureyri