Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Sérkennari í 6. bekk Sunnulækjarskóla

Auglýst er staða sérkennara í 6. bekk í 100% starfshlutfall. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er eftir áhugasömum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu og skapandi skólastarf.

Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast sérkennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með  
  • hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.   
  • Umsjón með daglegu skólastarfi í samstarfi við árgangateymi .   
  • Er tengiliður einstaka nemenda innan skólans og við foreldra/forráðamenn.   
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli  
    og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.  
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.    
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara    

  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð     

  • Hæfni og áhugi á skólastarfi    

  • Góð færni í mannlegum samskiptum      

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku    

  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur   

Auglýsing birt12. ágúst 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar