Náttúrufræðistofnun
Náttúrufræðistofnun

Sérfræðingur í vistgerðakortlagningu

Náttúrufræðistofnun auglýsir laust tímabundið fullt starf sérfræðings á grasafræðisviði til að taka þátt í kortlagningu vistgerða landsins. Starfið felur í sér fjölbreytta og umfangsmikla vettvangsvinnu ásamt vinnslu landupplýsinga í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga stofnunarinnar.

Sérfræðingurinn tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd gróðurmælinga, skráningu plantna og umhverfisaðstæðna og gerð og uppfærslu vistgerðakorta. Starfið hentar einstaklingi sem vill sameina vettvangsvinnu og kortagerð.

Starfsstöð getur verið á Akranesi, Akureyri eða í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í skipulagningu, undirbúningi og framkvæmd vettvangsvinnu.
  • Gróðurmælingar, meðal annars sniðmælingar, greining og skráning tegunda æðplantna og skráning upplýsinga um vistgerðir og umhverfisaðstæður.
  • Söfnun staðsetningargagna og viðmiðunarpunkta til kortlagningar og sannprófunar vistgerðakorta.
  • Vinnsla landupplýsinga í QGIS með hliðsjón af vettvangsathugunum, loftmyndum, gervitunglamyndum og niðurstöðum annarra sérfræðinga.
  • Gerð og uppfærsla vistgerðakorta
  • Gæðaeftirlit með vettvangsgögnum, landupplýsingum og kortum.
  • Frágangur korta, framsetning niðurstaða og þátttaka í skýrslugerð.
  • Önnur tilfallandi verkefni á fagsviðinu í samráði við yfirmann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaragráða í líffræði, vistfræði eða skyldum greinum
  • Marktæk reynsla af gróðurrannsóknum og vettvangsvinnu.
  • Haldgóð þekking á íslenskri flóru.
  • Færni og reynsla af notkun QGIS og vinnslu landupplýsinga.
  • Nákvæmni í skráningu, meðferð og yfirferð gagna.
  • Góð íslensku- eða enskukunnátta í ræðu og riti.
  • Sjálfstæði í störfum og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og góð samstarfshæfni.
  • Gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Auglýsing birt20. október 2026
Umsóknarfrestur30. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar