
Fiskeldisfræðingur óskast í seiðaeldi
Samherji fiskeldi leitar að ábyrgum og áhugasömum fiskeldisfræðingi í seiðastöð félagsins að Núpum í Ölfusi.
Á Núpum fer fram klak og seiðaeldi á laxi og bleikju, allt frá hrognum að seiðum sem eru tilbúin til flutnings í áframeldi. Stöðin nýtir grunnvatn til eldisins og jarðhita til upphitunar. Dagleg störf eru fjölbreytt og sameina umhirðu fisks, fóðrun og eftirlit. Lögð er áhersla á velferð fisks, góðan aðbúnað og vönduð vinnubrögð.
Við leitum að einstaklingi sem vill nýta þekkingu sína, þróast í starfi og taka virkan þátt í daglegum rekstri stöðvarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Dagleg umhirða og fóðrun seiða.
-
Eftirlit með líðan fisks, vatnsgæðum og aðstæðum í eldiskerjum.
-
Mælingar og skráningar til að fylgjast með vexti og framgangi eldisins.
-
Þátttaka í flokkun, bólusetningu og flutningi seiða.
-
Eftirlit með búnaði, þrif og önnur tilfallandi verkefni í stöðinni.
Menntun og hæfni
-
Menntun í fiskeldisfræði, líffræði eða tengdum greinum.
-
Áhugi á fiskeldi og velferð dýra.
-
Ábyrgð, vandvirkni og góð umgengni.
-
Hæfni til að vinna sjálfstætt og í samstarfi við aðra.
-
Frumkvæði og vilji til að læra og takast á við fjölbreytt verkefni.
-
Reynsla af fiskeldi eða sambærilegum störfum er kostur.
Vinnutími og fríðindi
-
Vinnutími er frá kl. 8:00 til 16:00 alla virka daga.
-
Matur og gott kaffi í boði.
Samherji fiskeldi er í vexti og fram undan eru áhugaverð verkefni við uppbyggingu og framleiðslu. Hér gefst tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu í seiðaeldi og taka þátt í áframhaldandi þróun stöðvarinnar.
Enska
Íslenska

