Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Sérfræðingur á sviði loftslagsmála og náttúruvár með áherslu á aðlögunaráætlun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leitar að sérfræðingi á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum sem hefur brennandi áhuga á að starfa í efstu stjórnsýslu landsins við að móta framtíð málaflokksins.

Um er að ræða fjölbreytt verkefni tengd loftslagsmálum í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á teymisvinnu og skipulögð vinnubrögð.

Staðan er á skrifstofu loftslagsmála sem hefur það megin markmið að fylgja eftir loftslagsstefnu stjórnvalda. Megin áherslur eru að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og vinna að aðlögun íslensks samfélags að loftslagsbreytingum ásamt verkefnum um náttúruvá utan ofanflóðamála og stefnu þar um. Verkefnin snúa að því að halda utan um stefnumótun og löggjöf sem varðar loftslagsmál, náttúruvá, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun vegna loftslagsbreytinga. Þá er útfærsla og framkvæmd alþjóðasamninga á sviði loftslagsmála og Evrópulöggjöf í brennidepli. Auk þess sinnir skrifstofan málefnum vegna loftmengunar, veðurþjónustu, loftslagsþjónustu, og vöktun náttúruvár og stefnumótum um náttúruvá sem fellur ekki undir starfssvið Ofanflóðanefndar, þ.m.t. stefnumótun og hættumat vegna veðurfars, vatnsflóða, sjávarflóða og jarðskjálfta og eldgosa.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sérfræðingur á sviði loftslagsmála og náttúruvár með áherslu á aðlögunaráætlun tekur þátt í og leiðir verkefni á skrifstofunni með áherslu á aðlögunaraðgerðir, vöktun og stefnumótun, sinnir afgreiðslu mála, stjórnsýslu, alþjóðlegu samstarfi, eftirfylgni og ráðgjöf. Sérfræðingurinn mun sérstaklega leiða og taka þátt í vinnu er snýr að faglegri eftirfylgni aðlögunaráætlunar, þ.m.t. viðkvæmni- og áhættumati vegna áhrifa loftslagsbreytinga ásamt vinnu við stefnumótun og hættumat vegna náttúruvár utan ofanflóða. Sérfræðingurinn vinnur náið með verkefnisstjóra aðlögunaráætlunar. Þá tekur sérfræðingur á sviði loftslagsmála og náttúruvár þátt í vinnslu frumvarpa, reglugerða og upptöku Evrópuregluverks. Starfið felur einnig í sér samstarf innan ráðuneytisins, við önnur ráðuneyti, stofnanir og ýmsa hagaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á meistarastigi sem nýtist í starfi.

  • Góð þekking á sviði loftslagsmála og/eða náttúruvár á Íslandi.

  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.

  • Þekking eða reynsla á sviði loftslagsáhættu og/eða aðlögun að loftslagsbreytingum er kostur.

  • Góð stafræn færni og lausnamiðuð hugsun.

  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði í starfi.

  • Mjög góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar og geta til að vinna í teymi.

  • Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

  • Mjög góð kunnátta í ensku.

Auglýsing birt14. október 2026
Umsóknarfrestur23. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar