
Dagar hf.
Dagar eru framsækið en rótgróið fyrirtæki og saga okkar nær allt aftur til ársins 1980.
Við leggjum áherslu á að skapa framúrskarandi umhverfi fyrir fyrirtæki framtíðarinnar. Sérhæfing okkar byggir á áratuga reynslu, framsækni og frábæru starfsfólki. Við höfum einsett okkur að vera í fremstu röð í ræstingum og þrifum, fasteignaumsjón og virðisaukandi vinnustaðalausnum þegar kemur að þjónustustigi, öryggi og nýjungum.
Starfsemin teygir anga sína víða um land, Dagar eru með fastar starfsstöðvar á Akureyri, Selfossi og í Reykjanesbæ auk höfuðstöðva í Garðabæ.
Hjá Dögum starfar öflugur hópur fólks sem nýtir hugvit sitt og verkvit til að létta viðskiptavinum sínum lífið.
Gildin okkar eru virðing, frumkvæði, ábyrgð og gæði.
Vinnustaðurinn
Hjá Dögum starfa um 800 einstaklingar af mismunandi þjóðernum, með fjölbreyttan bakgrunn, reynslu og þekkingu.
Virk þátttaka og helgun starfsfólks er lykillinn að velgengni okkar. Árangur okkar er drifinn áfram af metnaði og knýjandi þörf fyrir að leita sífellt leiða til að gera betur, auka gæði og draga úr sóun ásamt forvitni okkar, frumkvæði og aga við að þróa nýjar þjónustulausnir sem viðskiptavinir okkar kunna að meta.
Við leggjum áherslu á starfstengda fræðslu og frá fyrsta degi fær starfsfólk þjálfun sem leggur áherslu á öryggi og tryggir rétt handtök í einu og öllu.
Við vitum að ánægt starfsfólk er lykillinn að ánægðum viðskiptavinum og þess vegna leggjum við áherslu á heilbrigt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi, góða þjálfun og hrós fyrir vel unnið verk. Við liðsinnum okkar fólki að eflast og ná árangri og erum stolt þegar við sjáum það blómstra í lífi og starfi.

Sérfræðingur í vaktaskipulagningu
Dagar leita að öflugum sérfræðingi sem mun bera ábyrgð á að skipuleggja, viðhalda og bæta vinnuvaktir starfsfólks. Starfið felur í sér gerð vaktaáætlana, greiningu á mönnunarþörf, eftirfylgni með mönnun á verkstöðum og samstarf við stjórnendur um stöðugar umbætur á mönnun og vaktaskipulagi. Einstaklingurinn starfar innan rekstrarsviðs en vinnur þvert á fyrirtækið í nánu samstarfi við ólíkar einingar. Lögð er áhersla á sterka greiningarfærni, skipulagshæfni og hafa góða samskiptafærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja og útbúa daglegar, vikulegar og mánaðarlegar vaktir starfsfólks.
- Fylgjast með framkvæmd vakta og bregðast við vegna m.a. veikinda, orlofs, leyfa eða annara ófyrirséðra aðstæðna.
- Leiða þróun og stöðugar umbætur á Field Service hugbúnaði í samstarfi við notendur, upplýsingatæknideild og þjónustuaðila.
- Tryggja að mönnun sé í samræmi við rekstrarþarfir og þjónustustig.
- Samræma vaktaskipti, yfirvinnu og afleysingar.
- Halda utan um upplýsingar um tiltæki starfsfólks og tryggja að vaktaskrár séu réttar og uppfærðar.
- Greina þróun í fjarvistum og skipulagi vakta og leggja fram tillögur að umbótum.
- Taka saman skýrslur og lykiltölur um mönnun og vinnustundaskipulag fyrir stjórnendur.
- Styðja við áætlanagerð vegna árstíðasveiflna, verkefna og annarra breytinga á mönnunarþörf.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla.
- Sterk greiningar- og lausnamiðuð hugsun.
- Þekking á vinnulöggjöf, kjarasamningum og mönnunaráætlunum kostur.
- Framúrskarandi skipulagshæfni og hæfni til að vinna markvisst undir álagi.
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Góð kunnátta í Microsoft Excel og öðrum Office-forritum.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og forgangsraða verkefnum.
- Reynsla af greiningar- og skýrslugerð, t.d. í Power BI eða sambærilegum kerfum kostur.
Auglýsing birt25. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 17, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)


