Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga

Sérfræðingur í stafrænni umbreytingu

Í boði er áhugavert starf í stafrænu umbreytingarteymi innan Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Teymið vinnur með öllum sveitarfélögum landsins til að koma þeim í fremstu röð í heiminum í stafrænni þjónustu hins opinbera. Við leitum að drífandi og áhugasömum einstaklingi í teymið. Með nýrri hugsun og nálgun og stafrænni umbreytingu spörum við fólki og fyrirtækjum tíma, aukum hagræði og höfum jákvæð áhrif á umhverfið.

Sérfræðingurinn mun vinna að tæknilegri framtíðarsýn fyrir sveitarfélög og að því að efla notendavæna stafræna þjónustu þeirra. Viðkomandi þarf að hafa skýra sýn á þau tækifæri sem stafræn umbreyting felur í sér, búa yfir frumkvæði og krafti til að hrinda breytingum í framkvæmd, hafa hæfni í samskiptum og samvinnu, getu til að taka ákvarðanir, breiða reynslu og þekkingu, auk þess metnað til að ná árangri í þágu sveitarfélaganna, íbúa þeirra og samfélagsins alls.

Jafnræðis skal gætt í hvívetna við ráðningu og leitast er við að starfsmannahópurinn endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í upplýsingatækni eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af stafrænni umbreytingu
Þekking á uppbyggingu gagnainnviða, nýtingu gagna og greiningum
Þekking á þróun skýjalausna þ.m.t. vefþjónusta
Þekking á Microsoft Office365 þjónustum.
Geta til að stýra verkefnum, þ.m.t. skipulagning og áætlanagerð
Framúrskarandi samskiptahæfni í ræðu og riti á skipulegan og skýran hátt
Geta til að koma upplýsingum frá sér á skýran hátt.
Greiningarhæfni og túlkun gagna.
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Yfirsýn og þekking á markaðsþróun upplýsingatæknimála og hvernig sú þróun skapar tækifæri fyrir sveitarfélögin
Færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku og einu Norðurlandamáli
Helstu verkefni og ábyrgð
Gerð leiðbeinandi tæknigrunns fyrir sveitarfélögin sem styður stefnumörkun stafrænna umbreytinga sveitarfélaganna
Stuðla að bættri hagnýtingu gagna og upplýsingatækni í rekstri tækniumhverfis sveitarfélaga
Leiða vinnu sem miðar að því að auka hagkvæmni í rekstri tækniumhverfis sveitarfélaga, að nýta tækifæri til samrekstrar og sameiginlegrar samningagerðar um hugbúnaðarkaup
Áætlanagerð og áhættustýringu verkefna sem snúa að sameiginlegri innviðauppbyggingu á sviði upplýsingatækni
Mat og forgangsröðun sameiginlegra verkefna sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu
Stuðla með virkum hætti að auknu samstarfi sveitarfélaga og ríkis á sviði upplýsingatækni
Fylgja eftir og miðla sjónarmiðum sveitarfélaga á sviði upplýsingatækni
Uppbygging stuðnings og verkfæra fyrir stafræna umbreytingu sveitarfélaga
Auglýsing birt5. júlí 2022
Umsóknarfrestur7. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar