Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Sérfræðingur í skólaþróunarteymi

Mennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir starf án staðsetningar!

Við leitum eftir tveimur sérfræðingum til starfa í nýju skólaþróunarteymi sem starfar þvert á fagskrifstofur menntamála og er einkum ætlað að fylgja eftir áherslum í nýrri menntastefnu til ársins 2030. Teymið mun heyra undir skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála og er ætlað að starfa í fimm ár hið minnsta.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir einstakling sem er nákvæmur í vinnubrögðum, býr yfir verulegri hæfni í mannlegum samskiptum og góðri skipulagshæfni. Leitað er eftir áhugasömum og jákvæðum einstaklingum sem eru skipulagðir í vinnubrögðum, búa yfir ríkri samskiptahæfni, sýna frumkvæði og geta starfað sjálfstætt og í teymum. Í starfinu munu felast einhver ferðalög um landið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldspróf er kostur.
Þekking og reynsla á einhverjum eftirtalinna sviða: náms- og gæðamat, starfsþróun kennara, aðalnámskrár, kennslufræði og námsgögn.
Þekking og reynsla af rannsóknum og greiningu á málefnum er falla undir málefnasvið fagskrifstofa menntamála.
Þekking og reynsla af stefnumótun, verkefnastjórnun og innleiðingu umbótaverkefna er einnig nauðsynleg.
Frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Góð færni í framsetningu og upplýsingamiðlun talaðs og ritaðs máls .
Góð kunnátta í ensku og Norðurlandamáli.
Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Samræming stuðnings og eftirfylgni með innleiðingu aðalnámskráa.
Efling starfsþróunar kennara og skólastjórnenda á öllum skólastigum.
Þróun innra og ytra mats, ráðgjöf og eftirfylgni.
Stuðningur og samráð við fagráð námssviða og kennararáð.
Greining á mikilvægum rannsóknaráherslum.
Gerð fræðsluefnis í samræmi við menntastefnu.
Ritstýring þemahefta sem styðja við innleiðingu aðalnámskrár og menntastefnu.
Skipulag menntaþings og annara viðburða í tengslum við menntastefnu.
Vinna að mótun aðgerða við þróun námsgagna.
Auglýsing birt8. október 2020
Umsóknarfrestur23. október 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sölvhólsgata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.RitstýringPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar