

Sérfræðingur í skjölun og utanumhaldi
Coripharma leitar að einstaklingi sem hefur metnað fyrir skipulagi, skráningu og utanumhaldi á gögnum tengt stöðugleikarannsóknum á lyfjum. Viðkomandi þarf að hafa getu til að vinna sjálfstætt og haga vinnu sinni í samræmi við tímalínur. Stöðugleikadeild er hluti af Þróunarsviði Coripharma og sér um mælingar á stöðugleika lyfja í þróun og á markaði.
Aðalstarf sérfræðings í skjölun og utanumhaldi stöðugleikasýna er móttaka sýna, uppsetning geymsluþolsrannsókna, útgáfa gæðaskjala og utanumhald stöðugleikasýna fyrir mælingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móttaka sýna
- Uppsetning og framkvæmd stöðugleikarannsókna
- Útgáfa gæðaskjala
- Skráning, eftirfylgni og skipulag á sýnum
- Utanumhald gagna
Menntunar- og hæfniskröfur
- B.Sc. í raunvísindum eða háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af vinnu í GMP gæðakerfum er kostur
- Þekking á stöðugleikarannsóknum er kostur
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Nákvæm, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi
- Mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn, í dag starfa um 220 einstaklingar hjá fyrirtækinu. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki.
Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 26 lyfjum og er með 21 ný lyf í þróun. Nánari upplýsingar um Coripharma má finna á www.coripharma.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.







