Sérfræðingur í greiningum
Sérfræðingur í greiningum á sviði Mannauðs og menningar
Hefurðu gaman af því að greina tækifæri?
Mannauður og menning hefur það hlutverk að veita faglega forystu á sviði mannauðsmála og skapa framúrskarandi starfsumhverfi. Sviðið ber ábyrgð á og hefur umsjón með mannauðsmálum og starfsumhverfi OR samstæðunnar, meðal annars launa- og kjaramálum fyrir fimm fyrirtæki samstæðunnar, rekstri og umsjón með fasteignum, lóðum og lendum, skrifstofurýmum, bílamálum, hús- og tæknibúnaði og umtalsverðum fjárfestingum því tengdu.
Markmið okkar er að upplifun starfsfólks af vinnustaðnum sé frábær.
Við leitum að framsýnum og samskiptaliprum sérfræðingi sem hefur reynslu af því að vinna með gögn og mælikvarða og nýta til upplýstrar ákvarðanatöku, aukins árangurs og bættrar þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
Samskiptafærni og umbótahugsun
Mjög góð reynsla af greiningum, reynsla af vinnu með gögn tengd kjara- og launamálum mikill kostur
Reynsla af gagnagrunnum og samræmingu upplýsinga, kostur að hafa unnið með hugbúnað á borð við Tableau eða Power BI
Háskólamenntun sem nýtist, t.d. á sviði mannauðsmála, viðskiptafræði, hagfræði eða verkfræði
Helstu verkefni og ábyrgð
Úrvinnsla og greining launagagna, þ.m.t. jafnlaunagreiningar og launaspá
Umsjón með kjaramálum, þ.m.t. greiningum og vinnslu kjarasamninga (OR samstæðan gerir samninga við níu stéttarfélög)
Umsjón með ýmsum mannauðsgreiningum, rekstrargreiningum og uppbyggingu mælaborða fyrir sviðið
Samræming upplýsinga og úrvinnsla úr gagnagrunnum
Fjölbreytt upplýsingagjöf til stjórnenda og annarra hagaðila