Landgræðslan
Landgræðslan
Landgræðslan

Sérfræðingur í endurheimt vistkerfa

Landgræðslan óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sviði endurheimtar vistkerfa með áherslu á rannsóknir, greiningu og áætlanagerð við vernd og endurheimt vistkerfa. Sérfræðingurinn þarf að vera sveigjanlegur og vera tilbúinn til að taka þátt í þróun starfsins og breytingum sem kunna að verða á því.

Landgræðslan er þekkingar- og þjónustustofnun. Markmið hennar eru verndun gróðurs og jarðvegs og bætt landgæði. Stofnunin starfar samkvæmt lögum um landgræðslu nr. 155/2018. Stofnunin hefur höfuðstöðvar í Gunnarsholti en er auk þess með starfsstöðvar á Egilsstöðum, Húsavík, Sauðárkróki, Hvanneyri og í Reykjavík. Landgræðslan hefur lokið innleiðingu jafnlaunastaðals og fengið jafnlaunavottun.

Menntunar- og hæfniskröfur
Krafist er MS-prófs í náttúruvísindum, t.d. vistfræði eða líffræði
Góð þekking og skilningur á vistfræði
Skipulagshæfni, frumkvæði, sjálfstæði, sveigjanleiki og góð samskiptahæfni
Góð kunnátta í notkun tölvu og upplýsingatækni
Góð kunnátta í gagnaúrvinnslu og tölfræði
Gott vald á íslensku, talaðri og ritaðri
Gott vald á ensku, talaðri og ritaðri
Þekking á landupplýsingakerfum er kostur
Reynsla af rannsóknavinnu er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna við rannsóknir, greiningu og áætlunargerð í verkefnum tengdum vernd og endurheimt vistkerfa með áherslu á gróður og jarðveg
Gagnaúrvinnsla rannsóknagagna og uppgjör verkefna
Fræðsla og samskipti við sérfræðinga, hagaðila, sveitarfélög og almenning
Auglýsing birt3. júní 2021
Umsóknarfrestur18. júní 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Gunnarsholt 164495, 851 Hella
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar