Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Sérfræðingur í efnafræði

Hafrannsóknastofnun leitar að öflugum sérfræðingi með framhaldsmenntun í efnafræði eða skyldum greinum til að sinna fjölbreyttum verkefnum sem tengjast einkum áhrifum sjókvíaeldis á umhverfi fjarða. Viðkomandi verður hluti af teymi á umhverfissviði sem sinnir margvíslegum og krefjandi verkefnum sem stuðla að eflingu þekkingar á þoli fjarða til sjókvíaeldis og áhrifum eldis á vistkerfi fjarða með langtímavöktun, líkanagerð og markvissum rannsóknum. Kjarnaverkefni viðkomandi starfsmanns verða rannsóknir og vöktun á efnafræðilegu ástandi sjávar og botnsets.

Starfið felur einnig í sér þátttöku í ýmsum öðrum verkefnum sem kalla á sérfræðiþekkingu viðkomandi, til dæmis ráðgjöf og önnur rannsóknaverkefni. Nýjar og breytilegar áskoranir kalla á reglulegt endurmat verkefna, hvað varðar aðferðafræði og áherslur, og er sérfræðingnum ætlað taka virkan þátt í þeirri rýni, og þróun aðferðafræði þar sem það á við. Starfið er því fjölbreytt og kallar á sjálfstæð vinnubrögð auk þverfaglegrar samvinnu og spannar starfið allt frá hagnýtri vinnu við sýnatöku til álitsgerðar og þátttöku í stefnumótun.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að verkþáttum vöktunar á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis. 
  • Leiða og taka þátt í fjölbreyttum rannsóknaverkefnum sem efla þekkingu á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis, auk annarra tilfallandi rannsóknaverkefna.
  • Leiða og taka þátt í ráðgjafaverkefnum, svo sem  gerð umsagna, skýrslna eða annara álita. 
  • Taka þátt í faglegri þróunarvinnu verkefna og stefnumótun. 
  • Þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi.
  • Miðlun niðurstaðna og upplýsinga til ólíkra markhópa. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á sviði efnafræði, jarðefnafræði eða skyldra greina.
  • Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita. 
  • Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og skilmerkilegan hátt.
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Frumkvæði, metnaður og lausnamiðuð nálgun.
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og hæfni til að vinna í teymi.
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. 
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar