

Sérfræðingur á sviði umhverfisáhrifa sjókvíaeldis
Hafrannsóknastofnun leita að öflugum sérfræðingi með áhuga á áhrifum sjókvíaeldis á umhverfið og sjálfbærni. Viðkomandi verður hluti af teymi á Umhverfissviði sem sinnir margvíslegum og krefjandi verkefnum sem stuðla að eflingu þekkingar á þoli fjarða til sjókvíaeldis og áhrifum eldis á vistkerfi fjarða með langtímavöktun, líkanagerð og markvissum rannsóknum. Niðurstöðurnar eru nýttar til ráðgjafar og álitsgerða, en að auki er lögð áhersla á miðlun gagna og upplýsinga til mismunandi markhópa.
Starfið er fjölbreytt og spannar allt frá hagnýtri vinnu við sýnatöku til túlkunar og þátttöku í stefnumótun. Viðkomandi tekur jafnframt þátt í öðrum verkefnum stofnunarinnar eftir þörfum. Starfsstöð getur verið í Hafnarfirði, á Ísafirði eða í Neskaupsstað.
- Þátttaka í skipulagningu rannsókna og framkvæmd rannsókna og vöktunar á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis.
- Þátttaka í rannsóknaleiðöngrum, sýnatöku og úrvinnslu sýna.
- Úrvinnsla, greining og túlkun gagna.
- Þátttaka í gerð ráðgjafar og álitsgerða.
- Miðlun niðurstaðna í ræðu og riti til fagfólks, stjórnvalda og annarra hagaðila.
- Þáttaka í öðrum verkefnum stofnunarinnar eftir þörfum.
- Framhaldsmenntun í líffræði, umhverfisfræðum eða skyldum greinum.
- Hæfni í gagnaúrvinnslu og notkun tölfræðiforrita (R eða sambærilegt).
- Þekking og reynsla af vinnu með landupplýsingakerfi er kostur.
- Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og skilmerkilegan hátt.
- Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Jákvætt viðmót, samstarfsvilji og lausnamiðuð nálgun.
- Góðir samskiptahæfileikar og hæfni til teymisvinnu.
- Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku og íslensku skilyrði. Tök á norðurlandamáli er kostur.
Enska
Íslenska