
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda og Peugeot ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu og þjónustu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, langtíma- og sendibílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 250 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 30 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls níu verkstæði.

Sérfræðingur á þjónustuborði
Snöggur og sveigjanlegur sérfræðingur með framúrskarandi þjónustulund
óskast á þjónustuborð Brimborgar.
Við leitum að manneskju til að veita framúrskarandi fyrstu þjónustu, símleiðis eða rafrænt, fyrir nýja og notaða bíla, bílaleigu, verkstæði, varahluti og dekkjaþjónustu. Viðkomandi manneskja þarf að vera snögg og sveigjanleg til að geta veitt framúrskarandi þjónustu í krefjandi og hröðu umhverfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Snögg og sveigjanleg vinnubrögð
Færni í notkun samfélagsmiðla
Færni í notkun Dynamix AX, Power Bi, CRM, Word, Excel
Gilt bílpróf og skilningur á bílum kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Stundvísi og áreiðanleiki
Helstu verkefni og ábyrgð
Samskipti við viðskiptavini í síma, rafrænt og á staðnum.
Lausnamiðuð ráðgjöf til viðskiptavina
Umsjón með tímapöntunum á verkstæðum
Skráning upplýsinga í upplýsingakerfi
Auglýsing birt30. apríl 2021
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bíldshöfði 4-6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Dynamics AXMicrosoft CRMMicrosoft ExcelMicrosoft WordSamskipti í símaSamviskusemiStundvísiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Afgreiðsla og almenn verslunarstörf
Bjarnabúð

Sölufulltrúi 66° Norður
66°North

Bakdyravörður – tímabundið starf
Þjóðleikhúsið

Vaktstjóri á þjónustuborð - Helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Starfsmaður óskast í verslun Fyrir Ísland á Keflav.flugvelli
Margt Smátt

Sölufulltrúi 66° Norður Akureyri
66°North

KFC Sundagörðum
KFC ehf.

Leitum að öflugum starfsmanni
Fiskur og félagar ehf.

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Sölu- og þjónustufulltrúi í verslun
Casalísa

Lyfja Skeifunni - Umsjónarmaður verslunar
Lyfja