Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Sérfræðingur á sviði uppeldis- og menntamála

Auglýst er 80-100% staða reynslumikils einstaklings á sviði uppelsis- og menntamála til að sinna verkefni á miðstigi skólans.

Starfsmaður tilheyrir stoðþjónustuteymi skólans og starfar með fagteymi. Markmið starfsins er að auka sjálfstæði og færni nemenda í daglegum athöfnum með beinni íhlutun og vinnu með nemanda.  

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur í nánu samstarfi við starfsfólk skólans og foreldra/forráðamenn nemenda í samráði við stjórnendur skólans og skólaþjónustu. 
  • Vinnur að einstaklingsáætlun í samráði/samstarfi við stjórnendur, skólaþjónustu og aðra eftir því sem við á. 
  • Skipuleggur /útbýr þjálfunar- og námsgögn og fylgir eftir settum markmiðum. Metur árangur og endurskoðar markmið í samstarfi við samstarfsaðila 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði skólamála s.s uppeldis- og menntunarfræða eða kennslufræða, þroskaþjálfafræða, iðjuþjálfunar,  atferlismótunar eða annara greina sem nýtist í sértækri vinnu með börnum. 
  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Færni í mannlegum samskiptum 
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku 
Auglýsing birt16. febrúar 2026
Umsóknarfrestur26. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar