
Hefur þú brennandi áhuga á velferðar- og heilbrigðismálum?
Laust er til umsóknar starf sérfræðings hjá Tryggingastofnun (TR). Um er að ræða spennandi og krefjandi sérfræðistarf í teymi ráðgjafa á sviði endurhæfingar. Starfið byggir á frumkvæði og þéttu samstarfi í breiðum hópi sérfræðinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
-
Mat, greining og úrvinnsla umsókna um sjúkra- og endurhæfingargreiðslur
-
Ráðgjöf, þjónusta og upplýsingamiðlun til viðskiptavina og samstarfsaðila
-
Samvinna í teymi fyrir mat á endurhæfingu og örorku
-
Þátttaka í samhæfingarteymi þjónustuaðila
-
Þróun vinnuferla og rafrænnar þjónustu
-
Skráning og meðhöndlun tölfræðiupplýsinga
-
Önnur sérhæfð verkefni
-
Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda, s.s. hjúkrunarfræði, iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, sálfræði eða félagsráðgjöf
-
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er kostur
-
Reynsla af starfi á sviði heilbrigðis- eða velferðarþjónustu
-
Mjög góð samskiptahæfni og frumkvæði
-
Þjónustulund og lausnamiðuð hugsun
-
Mjög góð hæfni í greiningu, túlkun og framsetningu gagna
-
Mjög gott vald á rituðu íslensku máli og góð enskukunnátta .
Íslenska
Enska










