RÚV
RÚV
RÚV

Sérfræðingur á safni RÚV

Við leitum að jákvæðum og skipulögðum sérfræðingi til starfa við skráningu og umsýslu efnis í safni RÚV. Starfið reynir á nákvæmni, þjónustulund, fagmennsku og góða samskiptahæfni.

Sérfræðingur á safni RÚV sinnir reglubundnum verkefnum en sýnir jafnframt áhuga og frumkvæði til að bæta og þróa verkferla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skráning og frágangur efnis með áherslu á tónlist.
  • Virk þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra aðferða við skráningu og umsýslu efnis.
  • Ábyrgð á samræmingu og gæðum skráningar.
  • Fjölbreytt samskipti tengd starfssviði safnsins bæði við dagskrárgerðarfólk og þá sem sækja þjónustu í safni RÚV.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun í upplýsingafræði, skjalastjórn eða skyldum greinum er kostur.
  • Haldbær reynsla sem nýtist í starfi. Þekking og áhugi á menningu og listum er kostur.
  • Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér ný kerfi. Þekking á skjalakerfum er kostur.
  • Sjálfstæði, virk umbótahugsun og frumkvæði í starfi.
  • Geta til að sinna nákvæmum og endurtekningarsömum verkefnum af fagmennsku.
  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
  • Mjög góð íslenskukunnátta í riti og ræðu og góð almenn tungumálakunnátta.

Umsóknarfrestur er til  24. maí 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri, [email protected]

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.

Umsóknir á erlendum tungumálum og umsóknir án viðeigandi umsóknargagna verða ekki teknar til greina.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni, uppruna eða fötlun.

Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur24. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar