
Sveitarfélagið Hornafjörður
VELKOMIN TIL HORNAFJARÐAR – ÞAR SEM NÁTTÚRAN, SAMFÉLAGIÐ OG FRAMTÍÐIN MÆTAST
--------
Í Hornafirði býðst þér einstakt tækifæri til að lifa og starfa í einu af öflugustu og fallegustu sveitarfélögum landsins. Hér móta jöklar, fjöll og strandlengja stórbrotið landslag sem veitir bæði innblástur og ró.
Hornafjörður er barnvænt, öruggt og samhent samfélag með öfluga skóla, fjölbreytt tómstundastarf og trausta innviði. Uppbygging er í fullum gangi – í atvinnulífi, þjónustu og menningu – og framtíðin björt.
Hjá Sveitarfélaginu Hornafirði starfar öflugur og samheldin hópur fólks með metnað fyrir framtíð sveitarfélagsins. Íbúar í Hornafirði eru í dag rúmlega 2800 og hefur fjölgun síðustu ára verið á forsendum verðmætasköpunar en mikil uppbygging á sér nú stað í sveitarfélaginu.
Ef þú leitar að lífsgæðum, nánara sambandi við náttúruna og samfélagi þar sem framlag þitt skiptir máli – þá er Hornafjörður rétti staðurinn fyrir þig.

Sérfræðingur á Svavarssafn
Menningarmiðstöð Hornafjarðar rekur þverfaglega og fjölbreytta stofnun sem sér meðal annars um fjögur söfn sveitarfélagsins, lista-, byggða-, bóka- og héraðsskjalasafn. Níu starfsmenn starfa saman hjá stofnuninni þó hver með sitt sérsvið. Við auglýsum nú stöðu sérfræðings á Svavarssafni lausa til umsóknar. Um fullt starf er að ræða og mun viðkomandi leiða starfsemi safnsins í samráði við forstöðumann. Mikill metnaður er fyrir sýningarhaldi Svavarssafns sem og miðlun og varðveislu safneignarinnar. Áhersla er lögð á að Menningarmiðstöðin auðgi samfélagið og sé í virku samtali við íbúa og aðra hagaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðir faglegt starf safnsins og daglega umsjón þess
- Umsjón með verkum og varðveislurýmum
- Skipulagning og uppsetning sýninga
- Umsjón með sýningarsölum
- Samskipti við listamenn og hagaðila
- Skrif og eftirfylgni styrkumsókna
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði lista eða safnafræða
- Reynsla af sambærilegum störfum
- Þekking og reynsla af styrkumsóknum
- Góðir skipulagshæfileikar og lipurð í samskiptum
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður
- Þekking á menningarlífi í sveitarfélaginu kostur
Auglýsing birt4. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Litlabrú 2, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar