Arctic Fish
Arctic Fish
Arctic Fish

Sérfræðingur á fjármálasviði (Financial Controller)

Arctic Fish óskar eftir að ráða sérfræðing á fjármálasviði til að starfa á skrifstofu fyrirtækisins á Ísafirði. Við leitum að öflugum aðila til að taka þátt í skemmtilegum og krefjandi verkefnum í lifandi, alþjóðlegu umhverfi. Sérfræðingur í fjármálum starfar fyrst og fremst við reikningshald, skýrslugerð og kostnaðareftirlit innan samstæðunnar og vinnur náið með Mowi erlendu móðurfélagi Arctic Fish.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna mánaðarlegar skýrslur og framkvæma gagnagreiningar fyrir yfirstjórn
  • Vinna með mánaðarleg og ársfjórðungsleg uppgjör og tryggja að uppgjör séu í samræmi við stefnu og verkferla fyrirtækisins
  • Yfirfara og greina fjárhagsskýrslur, bera kennsl á misræmi og gera tillögur að úrbótum
  • Taka þátt í greiningum og fjárhagsáætlunargerð samstæðunnar
  • Önnur fjölbreytt verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fjármála, viðskiptafræða eða reikningshalds
  • Reynsla af sambærilegu starfi og úr endurskoðun er kostur
  • Þekking og skilningur á helstu reikningsskilareglum, fjárhagsgreiningum og endurskoðunarstöðlum
  • Færni í bókhaldskerfum og Microsoft Excel, reynsla af PowerBI eða svipuðu er kostur
  • Framúrskarandi greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Sjálfstæð vinnubrögð og leiðtogahæfni
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur9. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar